Gríptu til aðgerða

Gríptu til aðgerða: Shell geri hreint fyrir sínum dyrum

Mynd_vegna_griptu_til_adgerda_oktober_09_-_Shell

 

Árið 1956 hóf stórfyrirtækið Shell fyrst aðvinna olíu á óseyrum Nígerfljóts í Nígeríu en 95% af útflutningstekjum landins byggja á olíu- og gasvinnslu. Þrátt fyrir að olíuvinnsla Shell hafi skilað ríkinu auknum tekjum, lifa 70% almennra borgara undir fátæktarmörkum. Gífurleg olíumengun og umhverfisspjöll hafa hlotist af starfsemi Shell á óseyrum Nígerfljóts sem hefur alvarleg heilsuspillandi áhrif á íbúanna og ógnar lífsviðurværi þeirra, þar á meðal fiskveiði og landbúnaði. Afleiðingarnar eru aukin fátækt og örbirgð. Íbúar eru sjaldnast upplýstir um áhrifin sem olíuvinnsla Shell á svæðinu hefur á mannréttindi og umhverfi þeirra. Þrátt fyrir að Shell hafi árið 2008 lofað umbótum og ábyrgari starfsemi á óseyrum Nígerfljóts er enn hyldýpisgjá á milli loforða og efnda. Rétturinn til heilsusamlegs umhverfis er mannréttindi. Amnesty International skorar á Mutiu Sunmonu, framkvæmdastjóra Shell í Nígeríu (Shell Petroleum Development), að hefja nýjan kafla í starfsemi Shell á óseyrum Nígerfljóts þar sem ábyrgð og gagnsæi eru sett á oddinn og mannréttindi virt.

 

Gríptu til aðgerða ! - Prentaðu út og sendu bréf til yfirmanns Shell í Nígeríu:

Bréfið



 

Góðar fréttir

Góðar fréttir: Bretland greiðir skaðabætur til manns sem ranglega var bendlaður við hryðjuverk

Amnesty International fagnar ákvörðun breskra stjórnvalda um að greiða skaðabætur til flugkennarans Lotfi Raissi, sem var ranglega ásakaður um að hafa þjálfað flugræningjana sem gerðu árásir í Bandaríkjunum þann 11. september 2001.

 

Góðar fréttir: egypskur bloggari leystur úr haldi

Amnesty International fagnar því að egypskur bloggari hafi verið leystur úr haldi. Hann var handtekinn eftir að hann ýjaði að frændhygli innan herafla landsins á bloggi sínu.

 

Góðar fréttir: hvítrússneskur andófsmaður og rokkari leystur úr haldi í Úkraínu

Amnesty International fagnar því að hvítrússneska andófs- og rokktónlistarmanninum Igor Koktysh hafi verið sleppt eftir tvö og hálft ár í varðhaldi í Úkraínu.

 

Fleiri góðar fréttir





RSS:

RSS
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasíðurheimasíður - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.