Gríptu til aðgerða

Gríptu til aðgerða: verjum lífshætti Lubicon Cree frumbyggja og landið sem þeir byggja

 

Yfirgefinn_veidikofi_-_oliuvinnsla_i_bakgrunni_-_Lubicon_Cree

 

Lubicon Cree frumbyggjar í Alberta-fylki í Kanada lifðu á landi sem nú hefur að stórum hluta verið lagt undir olíu- og gasvinnslu, en svæðið er afar ríkt af þeim náttúruauðlindum. Allt frá því að byrjað var að grafa eftir olíu og gasi í fylkinu árið 1970 hefur hagvöxtur aukist til muna en frumbyggjarnir ekki hlotið skerf af þeirri auðlegð og búa við sára fátækt. Raunar hefur hlutfall Lubicon Cree fjölskyldna sem þarf á fjárhagsstuðningi að halda aukist til muna frá því að olíuframleiðsla hófst á svæðinu eða úr 10 í 90 prósent. Náttúrulíf hefur beðið skaða af olíuvinnslu og skógarhöggi í Alberta-fylki er hafa haft gríðarleg áhrif á veiði sem margir höfðu lifibrauð af. Grunnþjónusta á borð við aðgang að hreinu vatni og sorphreinsun er ekki til staðar og allt frá árinu 1984 hafa Lubicon Cree frumbyggjar ennfremur greint frá alvarlegum heilsubresti meðal íbúa vegna olíuvinnslu á svæðinu. Bæði kanadísk stjórnvöld og fylkisstjórnir hafa gengist við þörfinni á sáttagerð við Lubicon Cree frumbyggja um landsvæðið en ekkert samkomulag hefur verið gert frá árinu 2003. Í millitíðinni heldur fylkisstjórn Alberta-fylkis áfram að heimila olíu- og gasvinnslu á landsvæði Lubicon Cree frumbyggja.




Góðar fréttir

Góðar fréttir: dómstóll í Slóvakíu úrskurðar gegn aðskilnaði Róma-barna í skólakerfinu!

Dómstóll í Slóvakíu bannaði nýverið aðskilnað Róma-barna í grunnskóla í þorpinu Šarisské Michaľany, í Prešov héraði.

Lesa meira
 

Góðar fréttir – janúar 2012 – mexíkósk stjórnvöld gangast við ábyrgð vegna nauðgana

Mexíkósk stjórnvöld hafa opinberlega gengist við ábyrgð vegna nauðgunar Valentinu Rosendo Cantú (sjá upplýsingar um málið hér).

Lesa meira
 

Góðar fréttir: samviskufangar leystir úr haldi í Mjanmar

Verkalýðsfrömuðurinn Su Su Nway frá Mjanmar var leyst úr haldi í vikunni, ásamt samlöndum sínum Zarganar og Zaw Htet Ko Ko.

Lesa meira
 

Góðar fréttir: bareinskt ljóðskáld leyst úr haldi!

Ayat al-Qarmezi, sem er bareinskt ljóðskáld og háskólanemi í Kennaraháskóla Bareins, var dæmd í eins árs fangelsi fyrir að lesa ljóð.

Lesa meira
 

Fleiri góðar fréttir





RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica