Gríptu til aðgerða

Gríptu til aðgerða: þvingaður brottflutningur í Simbabve

Þvingaður brottflutningur í Simbabve 

 

Áætlað er að 700 hundruð þúsund manns hafi misst heimili sín, atvinnu eða hvort tveggja, í skipulögðum aðgerðum (Murambatsvina) stjórnvalda í Simbabve árið 2005. Bæði heimili og fyrirtæki voru rifin niður í aðgerðunum og beittu lögregla og her fólk gegndarlausu ofbeldi meðan á þeim stóð.

Dómsúrskurður um brottflutningana lá ekki fyrir og íbúum var ekki gefin nægilegur fyrirvari, en hvort tveggja brýtur í bága við alþjóðleg mannréttindalög sem Simbabve hefur skuldbundið sig til að hlíta. Í júní 2005 hrintu stjórnvöld af stað herferð sem nefndist Garikai/Hlalani Kuhle (Betra líf) undir því yfirskini að bæta fólki upp missinn og útvega því mannsæmandi húsaskjól.

 

Þvingaður brottflutningur í Simbabve2

 

Sárafá fórnarlömb þvinguðu brottflutninganna fengu þó skaðann bættan eins og til stóð. Flestum var úthlutað agnarlitlum, hrjóstrugum landsskika þar sem þau urðu sjálf að byggja sér ný húsakynni, en í þeim tilvikum sem stjórnvöld sáu fólki fyrir húsnæði voru 20% þeirra eyrnamerkt þeim sem störfuðu innan hersins, lögreglunnar eða sinntu opinberum embættisstörfum. Allt fram á þennan dag búa fórnarlömb þvinguðu brottflutninganna árið 2005 við hörmulegar aðstæður.

Gríptu til aðgerða: sendu bréf og þrýstu á stjórnvöld í Simbabve !

Bréfið




Góðar fréttir

Góðar fréttir: dómstóll í Slóvakíu úrskurðar gegn aðskilnaði Róma-barna í skólakerfinu!

Dómstóll í Slóvakíu bannaði nýverið aðskilnað Róma-barna í grunnskóla í þorpinu Šarisské Michaľany, í Prešov héraði.

Lesa meira
 

Góðar fréttir – janúar 2012 – mexíkósk stjórnvöld gangast við ábyrgð vegna nauðgana

Mexíkósk stjórnvöld hafa opinberlega gengist við ábyrgð vegna nauðgunar Valentinu Rosendo Cantú (sjá upplýsingar um málið hér).

Lesa meira
 

Góðar fréttir: samviskufangar leystir úr haldi í Mjanmar

Verkalýðsfrömuðurinn Su Su Nway frá Mjanmar var leyst úr haldi í vikunni, ásamt samlöndum sínum Zarganar og Zaw Htet Ko Ko.

Lesa meira
 

Góðar fréttir: bareinskt ljóðskáld leyst úr haldi!

Ayat al-Qarmezi, sem er bareinskt ljóðskáld og háskólanemi í Kennaraháskóla Bareins, var dæmd í eins árs fangelsi fyrir að lesa ljóð.

Lesa meira
 

Fleiri góðar fréttir





RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica