Gríptu til aðgerða

Gríptu til aðgerða: þvingaður brottflutningur í Angóla

 

Þvingaður brottflutningur í Angóla

 

Rúmlega 10.000 fjölskyldur eru enn heimilislausar í Lúanda, höfuðborg Angóla eftir að hafa verið þvingaðar brott af heimilum sínum í júlí 2001. Lögregla, her, öryggisverðir og héraðsfulltrúar framkvæmdu útburðinn en ósjaldan var fólk beitt miklu ofbeldi meðan á aðgerðunum stóð. Í sumum tilvikum handtók lögregla einnig íbúa sem streittust á móti og hélt þeim föngnum um tíma. Meðlimir í samtökum í Lúanda sem berjast fyrir réttinum til húsaskjóls (SOS-Habitat) voru jafnframt handteknir þegar þeir reyndu að sannfæra yfirvöld um að stöðva útburðinn.

 

Þvingaður brottflutningur í Angóla2

 

Fáar fjölskyldur hafa hlotið bætur vegna skaðans. Sumar fengu úthlutað húsaskjóli í 30 til 40 kílómetra fjarlægð frá borginni þar sem aðgangur að atvinnu, menntun, sjúkrahúsi, skolpræsikerfi eða annarri grunnþjónustu er enginn. Mikill meirihluti fólks þarf sjálfu að sjá sér farborða og fjöldinn allur sætir síendurteknum útburði. Hundruð fjölskyldna hafa ekkert húsaskjól og búa í rústum þar sem heimili þeirra stóðu áður.

Gríptu til aðgerða: sendu bréf og þrýstu á stjórnvöld í Angóla !

Bréfið




Góðar fréttir

Góðar fréttir: dómstóll í Slóvakíu úrskurðar gegn aðskilnaði Róma-barna í skólakerfinu!

Dómstóll í Slóvakíu bannaði nýverið aðskilnað Róma-barna í grunnskóla í þorpinu Šarisské Michaľany, í Prešov héraði.

Lesa meira
 

Góðar fréttir – janúar 2012 – mexíkósk stjórnvöld gangast við ábyrgð vegna nauðgana

Mexíkósk stjórnvöld hafa opinberlega gengist við ábyrgð vegna nauðgunar Valentinu Rosendo Cantú (sjá upplýsingar um málið hér).

Lesa meira
 

Góðar fréttir: samviskufangar leystir úr haldi í Mjanmar

Verkalýðsfrömuðurinn Su Su Nway frá Mjanmar var leyst úr haldi í vikunni, ásamt samlöndum sínum Zarganar og Zaw Htet Ko Ko.

Lesa meira
 

Góðar fréttir: bareinskt ljóðskáld leyst úr haldi!

Ayat al-Qarmezi, sem er bareinskt ljóðskáld og háskólanemi í Kennaraháskóla Bareins, var dæmd í eins árs fangelsi fyrir að lesa ljóð.

Lesa meira
 

Fleiri góðar fréttir





RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica