Gríptu til aðgerða

Gríptu til aðgerða: fóstureyðingabann í Níkaragva

 

Fostureydingabann_i_Nikaragva

 

Í kjölfar breytinga á hegningarlöggjöfinni í Níkaragva árið 2008 var blátt bann lagt við fóstureyðingu í öllum tilvikum, jafnvel þegar líf eða heilsa stúlkna og kvenna er í hættu vegna vandkvæða á meðgöngu eða þegar þungun er afleiðing nauðgunar.

Óréttmæt refsiákvæði laganna hindra þungaðar konur og stúlkur í að leita sér læknisaðstoðar í neyðartilvikum og setja heilbrigðissstarfsfólki þröngar skorður. Læknar eiga til að mynda á hættu að sæta fangelsi ef þeir grípa inn í aðstæður þar sem líf þungaðra kvenna eða stúlkna liggur við og slíkt inngrip leiðir óvart til fósturláts. Aukinheldur er of erfitt ef ekki ómögulegt í öllum tilvikum að sanna hvort kona hefur misst fóstur eða farið í fóstureyðingu.

Af þessu leiðir að þúsundir kvenna og stúlkna í Níkaragva sem ár hvert verða fyrir fósturmissi og heilbrigðisstarfsfólkið sem sinnir þeim í kjölfarið, eiga hættu að verða fyrir rangri sök og kærð fyrir fóstureyðingu

Amnesty International skorar á yfirvöld í Níkaragva að framfylgja skyldu sinni til að vernda, virða og uppfylla mannréttindi kvenna og stúlkna. Yfirvöld eru hvött til að ógilda nýju löggjöfina og tryggja að konur og stúlkur sæti ekki refsingu í kjölfar fóstureyðingar.

Gríptu til aðgerða: sendu bréf til stjórnvalda í Níkaragva !

Bréfið




Góðar fréttir

Góðar fréttir: dómstóll í Slóvakíu úrskurðar gegn aðskilnaði Róma-barna í skólakerfinu!

Dómstóll í Slóvakíu bannaði nýverið aðskilnað Róma-barna í grunnskóla í þorpinu Šarisské Michaľany, í Prešov héraði.

Lesa meira
 

Góðar fréttir – janúar 2012 – mexíkósk stjórnvöld gangast við ábyrgð vegna nauðgana

Mexíkósk stjórnvöld hafa opinberlega gengist við ábyrgð vegna nauðgunar Valentinu Rosendo Cantú (sjá upplýsingar um málið hér).

Lesa meira
 

Góðar fréttir: samviskufangar leystir úr haldi í Mjanmar

Verkalýðsfrömuðurinn Su Su Nway frá Mjanmar var leyst úr haldi í vikunni, ásamt samlöndum sínum Zarganar og Zaw Htet Ko Ko.

Lesa meira
 

Góðar fréttir: bareinskt ljóðskáld leyst úr haldi!

Ayat al-Qarmezi, sem er bareinskt ljóðskáld og háskólanemi í Kennaraháskóla Bareins, var dæmd í eins árs fangelsi fyrir að lesa ljóð.

Lesa meira
 

Fleiri góðar fréttir





RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica