Gríptu til aðgerða

Gríptu til aðgerða: hótanir gegn íbúum þorpa á Vesturbakkanum

Fra_Vesturbakkanum

Palestínskar fjölskyldur sem búa í þorpunum Humsa og Hadidiya á Vesturbakkanum, sem er hluti herteknu svæðanna, búa daglega við hótanir ísraelska hersins um vera reknar með valdi úr húsum sínum. Fólkið hefur ekki ferðafrelsi og fær ekki aðgang að vatni og landi sem nauðsynlegt er fyrir lífsafkomu þeirra. Ísraelsmenn hafa hvað eftir annað eyðilagt heimili tugi fjölskyldna þannig að þær hafa neyðst til að færa sig um set og byggja sér ný híbýli í nágrenninu. Sú ógn vofir ávallt yfir að nýju heimilin verði einnig eyðilögð og fólkið þvingað burt.

Ísraelski herinn eyðilagði þann 4. júní 2009 heimili 18 palestínskra fjölskylda þar sem meira en 130 manns bjuggu í þorpinu Ras al-Ahmar, næst við Humsa, og tóku vatnstank fjölskyldnanna.

Í Hadidyia reyna fjölskyldurnar að sækja rétt sinn og mótmæla þvinguðum brottflutningi og eyðileggingu heimila sinna fyrir ísraelskum herdómstóli, þótt lítil von sé um árangur. Sex barna faðir, Muhammad Bani Odeh, hefur þurft að flytja heimili sitt að minnsta kosti fjórum sinnum af ótta við þvingaðan brottflutning og eyðileggingu. Rétt eins og aðrir í þorpinu hefur hann búið á Vesturbakkanum frá því löngu áður en Ísraelar hertóku hann 1967 og hann ætlar sér að búa þar áfram. Stór hluti Humsa-þorps er einnig í hættu að verða rutt í burtu.

Hundruð manna, flestir börn, eiga á hættu að missa húsnæði sitt og vera hrakin burt af svæðinu. Þorpsbúar fá einungis vatn úr færanlegum vatnstanki sem oft þarf að flytja úr stað allt að 20 km vegalengd með tilheyrandi töfum við varðstöðvar Ísraela. Það er brunnur nálægt Palestínubúunum, en það vatn er eingöngu fyrir ísraelska landtökumenn.

Ísraelsk yfirvöld segja að fólkið hafi engan rétt til að búa á svæðinu þar sem það sé lokað hernaðarsvæði sem liggur að ólöglegu landtökulandi.

 

Þvingaði brottflutningurinn er dæmigerður fyrir þá mismunun sem felst í því að palestínsk heimili eru eyðilögð á meðan fjöldi ísraelskra landtökumanna skipuleggja og reisa hús, ólöglega samkvæmt alþjóðalögum, á herteknu palestínsku landi og nýta auðlindirnar þar að auki.

 

Þrýstu á yfirvöld í Ísrael með því að senda bréf núna !

Bréfið



 

Góðar fréttir

Góðar fréttir: Bretland greiðir skaðabætur til manns sem ranglega var bendlaður við hryðjuverk

Amnesty International fagnar ákvörðun breskra stjórnvalda um að greiða skaðabætur til flugkennarans Lotfi Raissi, sem var ranglega ásakaður um að hafa þjálfað flugræningjana sem gerðu árásir í Bandaríkjunum þann 11. september 2001.

 

Góðar fréttir: egypskur bloggari leystur úr haldi

Amnesty International fagnar því að egypskur bloggari hafi verið leystur úr haldi. Hann var handtekinn eftir að hann ýjaði að frændhygli innan herafla landsins á bloggi sínu.

 

Góðar fréttir: hvítrússneskur andófsmaður og rokkari leystur úr haldi í Úkraínu

Amnesty International fagnar því að hvítrússneska andófs- og rokktónlistarmanninum Igor Koktysh hafi verið sleppt eftir tvö og hálft ár í varðhaldi í Úkraínu.

 

Fleiri góðar fréttir





RSS:

RSS
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasíðurheimasíður - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.