Gríptu til aðgerða

Mannréttindabrot við álvinnslu á Indlandi

 

Fra_adgerd_AI_vegna_alvinnslu_a_Indlandi

 

„Við höfum búið hér kynslóðum saman; hvernig getur ríkisstjórnin sagt að þetta sé þeirra land og leyft námavinnslu án þess að ræða við okkur?

L., frá þorpinu Lakpaddar

Breska námafyrirtækið Vedanta Resources ógnar mannréttindum frumbyggjasamfélaga í Orissa-ríki á Indlandi. Fyrirtækið áformar að vinna báxít í Niyamgiri-hæðum og stækka álvinnslu sína í Lanjigarh við rætur hæðanna.

Mati á mannréttindaáhrifum og umhverfisskaða fyrirhugaðra framkvæmda hefur verið mjög ábótavant. Indversk stjórnvöld hafa enn sem komið er ekki virt eða verndað mannréttindi íbúanna á svæðinu, sérstaklega rétt þeirra til landsvæða, sem þau hafa búið á mann fram af manni, rétt þeirra til vatns, vinnu, matar og heilsu, þar með talið heilsusamlegs umhverfis.

Prentaðu út bréf og þrýstu á stjórnvöld á Indlandi !:

Bréfið




Góðar fréttir

Góðar fréttir: dómstóll í Slóvakíu úrskurðar gegn aðskilnaði Róma-barna í skólakerfinu!

Dómstóll í Slóvakíu bannaði nýverið aðskilnað Róma-barna í grunnskóla í þorpinu Šarisské Michaľany, í Prešov héraði.

Lesa meira
 

Góðar fréttir – janúar 2012 – mexíkósk stjórnvöld gangast við ábyrgð vegna nauðgana

Mexíkósk stjórnvöld hafa opinberlega gengist við ábyrgð vegna nauðgunar Valentinu Rosendo Cantú (sjá upplýsingar um málið hér).

Lesa meira
 

Góðar fréttir: samviskufangar leystir úr haldi í Mjanmar

Verkalýðsfrömuðurinn Su Su Nway frá Mjanmar var leyst úr haldi í vikunni, ásamt samlöndum sínum Zarganar og Zaw Htet Ko Ko.

Lesa meira
 

Góðar fréttir: bareinskt ljóðskáld leyst úr haldi!

Ayat al-Qarmezi, sem er bareinskt ljóðskáld og háskólanemi í Kennaraháskóla Bareins, var dæmd í eins árs fangelsi fyrir að lesa ljóð.

Lesa meira
 

Fleiri góðar fréttir





RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica