Gríptu til aðgerða

Látið íranska samviskufanga lausa úr haldi !

Fra_motmaelum_vegna_kosninga_i_Iran

 

Hundruð Írana hafa verið handteknir frá því yfirvöld hertu aðgerðir sínar gegn andófsmönnum í kjölfar umdeildra forsetakosninga í júní 2009, sem Mahmoud Ahmadinejad vann.

Amnesty International hvetur írönsk stjórnvöld til að leysa úr haldi samviskufanga sem hnepptir voru í varðhald eða fangelsaðir fyrir það eitt að nýta sér tjáningarfrelsi sitt.


Blaðamenn, nemendur, baráttufólk fyrir mannréttindum, lögfræðingar, fræðimenn, fyrrum pólitískir fangar og fólk sem tilheyrir minnihlutahópum hafa sætt ofsóknum yfirvalda síðustu 12 mánuðina.

Réttarhöld eru gölluð og dómar grundvallaðir á „játningum“ sem fengnar eru með pyndingum eða annarri illri meðferð.

Sýndarréttarhöldin eftir kosningarnar voru óréttlætið uppmálað og ætlað að senda þeim skilaboð sem reyndu að andæfa stjórnvöldum.


Mótmælendur hafa verið dæmdir í langa fangelsisvist, sumir til hýðingar, og að minnsta kosti 16 verið dæmdir til dauða.


Amnesty International hvetur til þess að allir samviskufangar verði leystir úr haldi tafarlaust og án skilyrða.

 

Gríptu til aðgerða !


Skrifaðu undir ákall til íranskra stjórnvalda !

 

Góðar fréttir

Góðar fréttir: baráttumaður fyrir réttindum frumbyggja í Mexíkó leystur úr haldi

Amnesty International fagnar því að mexíkóskur baráttumaður fyrir réttindum frumbyggja hafi verið látinn laus úr fangelsi eftir tveggja ára fangelsisvist fyrir upplognar morðákærur.

 

Góðar fréttir: yfirvöld í Hvíta-Rússlandi leysa úr haldi mann sem neitaði að gegna herþjónustu af samviskuástæðum

Amnesty International fagnar því að stjórnvöld í Hvíta-Rússlandi hafi leyst úr haldi mann, sem dæmdur var í eins árs fangelsi fyrir að „koma sér undan herþjónustu“.

 

Góðar fréttir: Bretland greiðir skaðabætur til manns sem ranglega var bendlaður við hryðjuverk

Amnesty International fagnar ákvörðun breskra stjórnvalda um að greiða skaðabætur til flugkennarans Lotfi Raissi, sem var ranglega ásakaður um að hafa þjálfað flugræningjana sem gerðu árásir í Bandaríkjunum þann 11. september 2001.

 

Fleiri góðar fréttir





RSS:

RSS
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasíðurheimasíður - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.