Baráttumaður í Aserbaídsjan dæmdur í kjölfar upploginnar fíkniefnaákæru

Jabbar Savalan, sem er 20 ára, var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi þann 4. maí 2011 á grundvelli upploginnar fíkniefnaákæru. Amnesty International telur hann vera samviskufanga sem sé refsað vegna þess að hann nýtti sér tjáningarfrelsi sitt.
Þann 4. febrúar hvatti Jabbar til þess á Facebook að haldin yrðu mótmæli gegn stjórnvöldum. Kvöldið eftir var hann handtekinn þegar hann snéri heim eftir fund á vegum stjórnarandstöðuflokks í landinu.
Eftir réttarhöldin hótaði lögreglumaður Anar Gasimov, verjanda Jabbar.
Þrýstu á yfirvöld í Aserbaídsjan að sleppa Jabbar Savalan tafarlaust úr haldi.
