Gríptu til aðgerða

Erítrea: Embættismaður í einangrun fyrir andóf

Aster Fissehatsion

Aster Fissehatsion

 

Aster Fissehatsion, sem er 51 ára, og fyrrum yfirmaður í vinnu- og félagsmálaráðuneyti Erítreu, hefur verið haldið í einangrun án ákæru eða réttarhalda frá því í september 2001. Hún var handtekin í aðgerðum stjórnvalda gegn hópi pólitísks andófsfólks, sem kallast H-15, eða Hópur hinna 15, en allir félagar í hópnum eru fyrrum forvígisfólk í hernum eða stjórnmálum landsins. Ekki er vitað hvar henni er haldið. Hún er talin þjást af magasári.

 

Skrifaðu til stjórnvalda í Erítreu vegna Aster Fissehatsion

Lestu meira um ástand mannréttinda í Erítreu

 

 

 


Góðar fréttir

Góðar fréttir: Jabbar Savalan leystur úr haldi í Aserbaídsjan

Jabbar Savalan sat í fangelsi í Aserbaídsjan í 11 mánuði fyrir skrif á Facebook. Hann var látinn laus þann 26. desember 2011 eftir að forseti landsins náðaði hann.

Lesa meira
 

Góðar fréttir: dómstóll í Slóvakíu úrskurðar gegn aðskilnaði Róma-barna í skólakerfinu!

Dómstóll í Slóvakíu bannaði nýverið aðskilnað Róma-barna í grunnskóla í þorpinu Šarisské Michaľany, í Prešov héraði.

Lesa meira
 

Góðar fréttir – janúar 2012 – mexíkósk stjórnvöld gangast við ábyrgð vegna nauðgana

Mexíkósk stjórnvöld hafa opinberlega gengist við ábyrgð vegna nauðgunar Valentinu Rosendo Cantú (sjá upplýsingar um málið hér).

Lesa meira
 

Góðar fréttir: samviskufangar leystir úr haldi í Mjanmar

Verkalýðsfrömuðurinn Su Su Nway frá Mjanmar var leyst úr haldi í vikunni, ásamt samlöndum sínum Zarganar og Zaw Htet Ko Ko.

Lesa meira
 

Fleiri góðar fréttir





RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica