Gríptu til aðgerða

Rússland: Virðið tjáningarfrelsi listamanna

Tveir menn sem skipulögðu sýningu á nútímalist í Moskvu hafa verið handteknir fyrir að hvetja til haturs eða illvildar og fyrir vanvirðingu við mannlega reisn.

Yurii Samodurov og Andrei Yerofeev héldu sýningu í Sakharov-safninu í Moskvu í mars 2007sem þeir kölluðu Forboðin list 2006.

Á sýningunni voru ýmis listaverk (ljósmyndir, málverk, klippimyndir og annað) sem höfðu ekki fengist sýnd á sumum sýningum.

En ýmis verkanna, þar á meðal verk eftir vel þekkta rússneska samtímalistamenn eins og Ilya Kabakov, Aleksandr Kosolapov, Aleksandr Savko og Mikhail Roginskii, hafa þegar verið sýnd á öðrum sýningum í Rússneska sambandsríkinu og á stórum listsýningum víða um heim.

Verkin ná frá Sovéttímabilinu til 21. aldarinnar. Nokkur þeirra nota trúarmótíf eins og íkona eða málverk með trúarlegum vísunum.

Í niðurstöðu saksóknara í Taganski-hverfinu er fullyrt að báðir mennirnir hafi skipulagt sýningu sem „er greinilega ætlað að lýsa niðrandi eða vanvirðandi viðhorfi til kristinnar trúar almennt og sérstaklega átrúnaði rétttrúnaðarkirkjunnar með áberandi og augljósum hætti.“ Ef þeir verða dæmdir sekir mega báðir mennirnir eiga von á fangelsisvist.

Yurii Samodurov, stjórnandi Sakharov-safnsins var ákærður þann 15. maí 2008. Andrei Yerofeev, sem þá var stjórnandi samtímalistadeildar Tretiakov-safnsins í Moskvu, var ákærður þann 22. maí. Báðir menn eru ákærðir á grundvelli greinar 282.2 í refsilöggjöf Rússlands (sem fjallar um þá sem hvetja til haturs eða illvildar og niðurlægingar á mannlegri reisn með því að nota opinbera stöðu sína)

Skrifstofa saksóknarara Taganskii-hverfisins fékk nokkra sérfræðinga til að leggja mat á listmunina. Einn sérfræðingur í íkonalist komst að eftirfarandi niðurstöðu: „neikvæðir straumar frá gripunum geta valdið árásargirni, eða að minnsta kosti virðingarleysi gagnvart [helgigripunum] sem notaðir eru á sýningunni eða gegn öðrum hlutum sem trúarhópar nota“.

Yurii Samodurov hafði áður verið fundinn sekur um að hvetja til haturs eða illvildar og dæmdur í skilorðsbundið fangelsi í tengslum við aðra sýningu. Amnesty International leit þá svo á að hann væri mögulega samviskufangi og barðist fyrir rétti hans til að nýta sér tjáningarfrelsi sitt.

Amnesty International lítur svo á að listhlutir hvetji ekki til haturs. Þó að sýningin geti sært suma áhorfendur ætti slíkt ekki að leiða til þess að skipuleggjendur sýningarinnar sæti lögsókn.

Alþjóðleg mannréttindalög leyfa ekki að tjáningarfrelsi sé takmarkað eða bannað á þeim grundvelli einum að tjáningin særi sumt fólk.

Takið þátt í aðgerð Amnesty International og hvetjið rússnesk stjórnvöld til að fella niður kærur á hendur Yurii Samodurov og Andrei Yerofeev.

 

 

Hér að neðan er bréf sem þú getur prentað og sent til stjórnvalda:

Bréf til rússneskra stjórnvalda




Góðar fréttir

Góðar fréttir: dómstóll í Slóvakíu úrskurðar gegn aðskilnaði Róma-barna í skólakerfinu!

Dómstóll í Slóvakíu bannaði nýverið aðskilnað Róma-barna í grunnskóla í þorpinu Šarisské Michaľany, í Prešov héraði.

Lesa meira
 

Góðar fréttir – janúar 2012 – mexíkósk stjórnvöld gangast við ábyrgð vegna nauðgana

Mexíkósk stjórnvöld hafa opinberlega gengist við ábyrgð vegna nauðgunar Valentinu Rosendo Cantú (sjá upplýsingar um málið hér).

Lesa meira
 

Góðar fréttir: samviskufangar leystir úr haldi í Mjanmar

Verkalýðsfrömuðurinn Su Su Nway frá Mjanmar var leyst úr haldi í vikunni, ásamt samlöndum sínum Zarganar og Zaw Htet Ko Ko.

Lesa meira
 

Góðar fréttir: bareinskt ljóðskáld leyst úr haldi!

Ayat al-Qarmezi, sem er bareinskt ljóðskáld og háskólanemi í Kennaraháskóla Bareins, var dæmd í eins árs fangelsi fyrir að lesa ljóð.

Lesa meira
 

Fleiri góðar fréttir





RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica