Sms-aðgerðarnetið

Bjargaðu mannslífum með farsímanum og skráðu þig í SMS-aðgerðanetið

Sendu: AMNESTY í 1900

 

 

 

 

Á hverjum degi fær Amnesty International upplýsingar um mannréttindabrot, sem krefjast tafarlausra viðbragða: pyndingar, geðþóttahandtökur, þvinguð mannshvörf og önnur mannréttindabrot. Því hefur Íslandsdeild Amnesty International komið á laggirnar SMS-aðgerðaneti þar sem fólk getur notað farsímann til að bjarga mannslífum með því að senda SMS. Þannig safnast fjöldi undirskrifta á stuttum tíma.

Hvað þú gerir:

1) Þú skráir þig með því að senda sms-ið: AMNESTY í 1900

2)  Þú færð sendar 2-3 aðgerðir (99kr. per aðgerð) á mánuði: þú svarar fyrstu aðgerðinni með því að senda: AKALL <ÞITT NAFN> í 1900 (passaðu að hafa bil milli AKALL og nafnsins þíns - til dæmis: AKALL Jóna Jónsdóttir) og þá skráist nafn þitt á undirskriftalista vegna aðgerðarinnar. Nánari upplýsingar um hvert mál má svo lesa á heimasíðunni: http://www.amnesty.is/hvadthugetur/sms-netid/sms-netid-mal/

3) Einungis þarf að skrá undirskriftina einu sinni. Næst þegar þú svarar aðgerð er nóg að skrifa: AKALL og senda í 1900 og þá bætist nafn þitt sjálfvirkt við hlið annarra sem taka þátt í aðgerðinni.

4) Ef þú vilt hætta í SMS-netinu þá sendirðu: AMNESTY STOP í 1900

Taktu þátt í að bjarga fólki frá pyndingum, geðþóttahandtökum og aftökum og skráðu þig í sms-aðgerðanetið !





RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica