Skyndiaðgerðanetið
Vertu virk(ur) í Amnesty International
Skyndiaðgerðanet Amnesty International virkjar tugþúsundir félaga í alþjóðlegu neti félaga sem bregðast við með skömmum fyrirvara til þess að vernda einstaklinga sem eru í bráðri hættu og eiga á hættu að vera pyndaðir, teknir af lífi, eða látnir ,,hverfa". Skyndiaðgerðanet Amnesty International kemur á framfæri þúsundum bréfa með tilmælum sem send eru til varnar einstaklingum og samfélagshópum sem eru í hættu. Mikilvægi þessara aðgerða felst í hraða þeirra. Öll mál sem send eru út í skyndiaðgerðanetinu eru mjög brýn og því er mælst til þess að þátttakendur skrifi bréf svo fljótt sem auðið er. Meira
