Hjálparákallið auðvelt og áhrifaríkt

Hjálparákallið - auðvelt og áhrifaríkt

 

10 mínútur á mánuði bjarga mannslífum
"Hjálparákall" kallast aðgerðanet hundruða þúsunda einstaklinga um heim allan, sem gefa sér tíma í hverjum mánuði til að hjálpa nokkrum þeirra fjölda einstaklinga, sem sitja í fangelsum vegna trúar sinnar, skoðana, eða uppruna og hvorki hafa beitt né hvatt til ofbeldis.

Auðvelt að sinna
Í hverjum mánuði fá félagar í Hjálparákalli send þrjú mál ásamt skrifuðu bréfi á ensku, sem þeir geta sent til þeirra stjórnvalda, sem ábyrg eru fyrir mannréttindabrotunum. Þetta er mjög auðvelt, og tekur einungis 10 mínútur á mánuði.

Þú lest meðfylgjandi upplýsingar á íslensku um málið:

1) prentar út bréfin, 2) skrifar undir þau og 3) sendir.


Einfalt en áhrifaríkt.

Bréf þitt bætist í hóp þúsunda annarra bréfa frá félögum sem berast viðkomandi stjórnvöldum.

Svona berð þú þig að
Þú færð bréf send í tölvupósti og prentar þau út. Skrifar undir bréfin, gjarnan með heimilisfangi þínu líka. Á umslögin stílar þú bréfin á það nafn og það heimilisfang sem er efst til vinstri í sjálfu bréfinu.

Síðan sendirðu þau af stað.


Auðvelt! - Lesa - prenta - senda


Alþjóðlegt og áhrifaríkt
Hjálparákallið er alþjóðlegt, þægilegt og árangursríkt aðgerðaform sem Amnesty International notar til að auka þrýsting á nokkur þeirra fjölda mála, sem samtökin fást við. Með því að lýsa þig reiðubúinn/reiðubúna til að taka þátt í þessu aðgerðaneti átt þú þátt í að fá samviskufanga lausa úr haldi, koma í veg fyrir aftökur, hindra pyndingar, 'mannshvörf' eða önnur gróf mannréttindabrot.


Ef þú vilt sjálf/sjálfur skrifa þitt eigið bréf
Þér er að sjálfsögðu velkomið að skrifa þitt eigið bréf, ef þú kýst það heldur. Þú getur þá stuðst við það bréf sem þú færð sent og unnið út frá því. Þú finnur leiðbeiningar um bréfaskriftir á heimasíðu Íslandsdeildarinnar.



Bréf send á netföng
Þessi nýi aðgerðakostur býðst einungis þeim sem að hafa netföng. Íslandsdeild Amnesty International hefur ekki tök á því að senda bréf mánaðarlega til þeirra sem að hafa áhuga á því að taka þátt í þessu aðgerðaformi. Það mun því einungis nýtast þeim sem að hafa aðgang að tölvu og netfang.



Fjórði hver einstaklingur fær úrbætur sinna mála
Í eitt af hverjum fjórum skiptum fær viðkomandi einstaklingur fulla lausn sinna mála. Það hlutfall hækkar umtalsvert ef horft er á þann fjölda mála sem hljóta umtalsverðar úrbætur

 




RSS:

RSS
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.