Hjálparákallsmál

Gvatemala: ofsóknir gegn baráttufólki fyrir mannréttindum

Hjálparákall október 2008

 

Fredy Peccerelli

Fredy Peccerelli

 

Réttarmannfræðingurinn Fredy Peccerelli, fjölskylda hans og samstarfsfólk mega þola líflátshótanir og margvíslegar ofsóknir vegna baráttu þeirra fyrir mannréttindum.

Fredy Peccerelli stýrir starfi Fundación de Antropología Forense de Guatemala (Réttarmannfræðistofnunar Gvatemala, FAFG), sem stundar rannsóknir og uppgröft á fjöldagröfum frá innanlandsátökunum í Gvatemala, sem stóðu frá 1960-1996.

Starf stofnunarinnar hefur leitt til þess að meðlimir herforingjastjórnarinnar, sem réði ríkjum í Gvatemala, hafa sætt ákæru fyrir alvarleg mannréttindabrot. Svo virðist sem að þetta starf hans hafi leitt til hótana og ofsókna.

Í tölvupósti, sem sendur var þann 19. maí 2008, var hótað að drepa Fredy Peccerelli, systur hans og fjóra forsvarsmenn FAFG. Í tölvupóstinum var eftirfarandi hótun: „Fredy, þinn dagur mun koma mjög fljótt og síðan mun koma að öðrum meðlimum stofnunarinnar, þú munt aldrei fá tækifæri til að bera vitni fyrir dómi [...]“ Hann hefur fengið lögregluvernd, en hún virðist vera ónóg.

 

Amnesty International hefur tekið upp mál Fredy Peccerelli til að varpa ljósi á starf baráttufólks fyrir mannréttindum í aðdraganda 10 ára afmælis Yfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna um baráttufólk fyrir mannréttindum þann 9. desember 2008, degi fyrir 60 ára afmæli Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna.

 

Hér að neðan eru bréf sem þið getið prentað út og sent til stjórnvalda

Bréfið í word-skjali

Bréfið í vefskjali

 







RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica