Alsír: mannréttindalögfræðingur dæmdur
Hjálparákall október 2008

Amine Sidhoum
Alsírski mannréttindalögfræðingurinn Amine Sidhoum er kunnur fyrir baráttu sína gegn pyndingum og óréttlátum réttarhöldum yfir þeim sem kærðir hafa verið fyrir hryðjuverkastarfsemi. Hann vinnur jafnframt í þágu fjölskyldna fólks sem hefur „horfið“ í Alsír. Vegna starfs hans hafa alsírsk stjórnvöld ofsótt hann.
Í apríl 2008 var Amine Sidhoum dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi og dæmdur til að greiða 20.000 dínara sekt (um 30.000 kr) fyrir að „vanvirða dómskerfið“. Dómurinn tengist blaðagrein frá 2004 þar sem haft var eftir honum að þeir 30 mánuðir, sem einn skjólstæðinga hans þurfti að dvelja í fangelsi án réttarhalda, hefðu verið „hrottafenginn dómur“.
Amine Sidhoum segir að hann hafi í raun lýst málinu þannig að það jafngilti „geðþóttavarðhaldi“. Dómurinn yfir honum kemur nokkrum mánuðum eftir að Mannréttindaráð SÞ lét í ljós áhyggjur af ofsóknum gegn baráttufólki fyrir mannréttindum í Alsír og mælti með að ærumeiðing væri ekki lengur flokkuð sem glæpur, sem varðaði fangelsisvist.
Bæði Amine Sidhoum og ákæruvaldið hafa áfrýjað dómnum. Ákæruvaldið fer fram á harðari viðurlög, en ærumeiðing getur varðað allt að tveggja ára fangelsi og sekt að jafngildi 350.000 kr. Amnesty International telur að málið gegn Amine Sidhoum sé af pólitískum toga spunnið til að hindra hann í mannréttindastarfi sínu. Samtökin telja málið tengjast almennum ofsóknum stjórnvalda í Alsír gegn baráttufólki fyrir mannréttindum í landinu.
Hér að neðan eru bréf sem þið getið prentað út og sent til stjórnvalda.
