Túrkmenistan: baráttufólk fyrir mannréttindum fangelsað
Hjálparákall október 2008

Ogulsapar Muradova
Ogulsapar Muradova, Annakurban Amanklychev og Sapardurdy Khadzhiev, sem öll berjast fyrir mannréttindum í Túrkmenistan, voru handtekin 16 til 18. júní 2006, að því er virðist vegna tengsla þeirra við Helsinki-stofnunina í Túrkmenistan, sem eru mannréttindasamtök.
Þann 19. júní 2006 flutti ríkissjónvarp landsins fregnir af því að öryggismálaráðherra landsins hefði sakað Annakurban Amanklychev um að vera viðriðinn „undirróðursstarfsemi“ og skipuleggja byltingu í Túrkmenistan. Ásakanirnar eru byggðar á því að Amanklychev tók þátt í mannréttindanámskeiðum í Póllandi og Úkraínu, tók við mannréttindaupplýsingum frá framkvæmdastjóra THF í Búlgaríu og veitti honum upplýsingar, og átti samstarf við erlent fjölmiðlafólk frá BBC og Galaxie Presse. Hermt var að þáverandi forseti landsins, Saparmurad Niyazov, hefði sagt: „Látum fólkið fordæma svikarana. Allir landsmenn eru stoltir af móðurlandinu, en þau reyna að skaða það.“
Annakurban Amanklychev, Ogulsapar Muradova og Sapardurdy Khadzhiev voru dæmd þann 25. ágúst 2006 í sex til sjö ára fangelsi hvert fyrir „ólögleg kaup, eign eða sölu skotfæra eða skotvopna.“ Réttarhöldin yfir þeim stóðu yfir í tæpar tvær klukkustundir. Sterkar vísbendingar eru um að ákæran sé uppspuni til að refsa þeim fyrir mannréttindastörf þeirra.
Þann 14. september 2006 var fjölskyldu Ogulsapar Muradova tjáð að hún hefði dáið í varðhaldi. Framkvæmdastjóri THF, Tadzhigul Begmedova, sagði Amnesty International að ættingjar sem fengu að skoða lík hennar hefðu „séð mikið sár á enni hennar og bletti á hálsinum.“ Amnesty International hefur áhyggjur vegna fregna um að allir fangarnir þrír hafi mátt þola pyndingar og illa meðferð í varðhaldi.
Hér að neðan eru bréf sem þið getið prentað út og sent til stjórnvalda
