Ísrael: táningsstúlkum haldið án ákæru eða réttarhalda
Hjálparákall - nóvember 2008
Salwa Salah og Sara Siureh frænka hennar, báðar 16 ára, hafa sætt varðhaldsvist í Ísrael frá því í júní, án ákæru eða réttarhalda.
Stúlkurnar tvær, sem verða 17 ára í þessum mánuði, voru handteknar aðfaranótt 5. júní 2008 á heimilum sínum í Betlehem á herteknu svæðunum. Ísraelskur herforingi skipaði svo fyrir að þær skyldu sæta varðhaldsvist í fjóra mánuði án ákæru eða réttarhalda.
Þann 5. október átti úrskurðurinn um varðhaldsvist að falla úr gildi en hann var framlengdur í þrjá mánuði og rennur nú út þann 3. janúar 2009. Ísraelsher fullyrðir að Salwa og Sara hafi tekið þátt í aðgerðum sem séu „öryggisógn“, en hefur ekki gert opinber nein gögn til að staðfesta þær ásakanir. Því er ekki hægt að véfengja fullyrðingar Ísraelshers fyrir dómi.
Palestínsk börn njóta ekki sömu réttinda og ísraelsk börn fyrir lögum, en mega sæta reglum og úrskurðum Ísraelshers sem samræmast ekki barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem Ísrael er aðili að. Nefnd SÞ um réttindi barnsins hefur lýst yfir áhyggjum af því að löggjöf í Ísrael mismuni ísraelskum og palestínskum börnum.
Báðum stúlkunum er haldið í Damoun fangelsi í norðanverðu Ísrael, í trássi við Genfarsamninga, en í samræmi við ákvæði þeirra eiga Palestínumenn að sæta fangelsi og varðhaldsvist á herteknu svæðunum, en ekki í Ísrael. Þær eru meðal 275 palestínskra barna, sem haldið er í ísraelskum fangelsum. Þar af er 13 haldið í sambærilegri varðhaldsvist, án ákæru eða réttarhalda. Ísraelskir herforingjar geta dæmt fólk í slíka varðhaldsvist í allt að sex mánuði í senn, og endurnýjað þann úrskurð endalaust.
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:
