Hjálparákallsmál

Sri Lanka: hryðjuverkalöggjöf notuð til að þagga niðri í blaðamanni

Hjálparákall - nóvember 2008

J. S. Tissainayagam

J.S. Tissainayagam

 

Jayapraksah Sittampalam Tissainayagam (einnig þekktur sem J.S. Tissainayagam) hefur sætt varðhaldi í sjö mánuði á grundvelli hryðjuverkalöggjafar í tengslum við lögmætt starf hans sem blaðamaður. Amnesty International skilgreinir hann sem samviskufanga. Hann þjáist af alvarlegum augnsjúkdómi og gæti misst sjónina ef hann fær ekki viðeigandi sérfræðimeðferð.

J. S. Tissainayagam var handtekinn þann 7. mars þegar hann fór í varðhaldsmiðstöð hryðjuverkalögreglu landsins í Colombo til að spyrjast fyrir um handtöku samstarfsmanns hans og eiginkonu samstarfsmannsins fyrr þann dag. Engin handtökuskipun var gefin út á hendur J.S. Tissainayagam, þó neyðarlög Sri Lanka kveði á um slíkt. Hann lagði fram kæru til hæstaréttar landsins vegna geðþóttahandtöku og varðhaldsvist hans.

Í málflutningi fyrir dómi þann 27. mars benti rétturinn á fyrri dóm um að handeknum skyldi ekki haldið af hryðjuverkalögreglu í meira en viku og skipaði fyrir um að mál hans skyldi tekið upp. Það var gert þann 31. mars. En ríkisstjórnin lagði síðan fram varðhaldskröfu á hendur J.S. Tissainayagam þar sem því var haldið fram að hann gengi erinda Tamíltígranna og að hægt væri að halda honum með lögmætum hætti í allt að 90 daga. Þann 7. júní var hann aftur dæmdur í þriggja mánaða varðhaldsvist.

 

Þann 25. ágúst var J.S. Tissainayagam ákærður fyrir glæpi sem varða hryðjuverkalöggjöf landsins. Þær kærur tengjast grein sem hann skrifaði í tímaritið North Eastern Monthly um áhrif ólgunnar í Sri Lanka á líf fólks og stjórnmál í landinu. Í ákærunni var meðal annars nefndur stuðningur og hvatning til hryðjuverkasamtaka með fjáröflun fyrir tímaritið og undirróðursstarfsemi. Hryðjuverkalöggjöf Sri Lanka er í andstöðu við alþjóðleg mannréttindalög og alþjóðleg mannréttindaviðmið og henni hefur verið beitt gegn pólitískum andstæðingum stjórnvalda. Mál J. S. Tissainayagam er dæmigert fyrir tilraunir stjórnvalda til að þagga niður í baráttufólki fyrir mannréttindum á Sri Lanka, þar á meðal með varðhaldsvist án ákæru eða réttarhöldum.

 

Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

Bréfið í word-skjali

Bréfið í vefskjali







RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica