Hjálparákallsmál

Mósambík: lögregla skilur mann eftir í blóði sínu

Hjálparákall - nóvember 2008

 

Abranches Afonso Penicelo

Abranches Afonso Penicelo

 

Abranches Afonso Penicelo lést á spítala þann 15. ágúst 2007 eftir að hafa sætt árás lögreglumanna. Fimm lögreglumenn komu daginn áður á heimili Abranches Penicelo. Hann var neyddur inn í bíl og ekið á afskekktan stað um 140 km í burtu. Þar lömdu lögregluþjónarnir hann uns hann missti meðvitund. Hann var síðan skotinn í hnakkann, kveikt í honum og hann skilinn eftir til að deyja. En hann lifði og tókst að skríða að nálægum vegi, þar sem hann fannst og farið var með hann á spítala. Fjölskylda hans tilkynnti glæpinn til lögreglunnar sama kvöld eftir að hann var fluttur á sjúkrahús í Maputo. Hópur yfirmanna í lögreglunni fór á sjúkrahúsið til að hlusta á frásögn Abranches Penicelo, sem fjölskylda hans tók upp á farsíma.

Með dauða hans lauk 10 ára áreitni lögreglu gegn honum. Í september 2007 gerðu lögreglumenn húsleit á heimili hans og tóku skartgripi, peninga, bíla og aðrar eigur. Abranches Penicelo og bræður hans voru síðan handteknir og ákærðir fyrir rán á þjóðvegum landsins. Bræðrum hans var sleppt úr haldi án ákæru, en Abranches Penicelo var haldið í varðhaldi í eitt ár og fimm mánuði. Hann var sýknaður í desember 1999 og skipaði dómstóllinn svo fyrir að fjölskyldan skyldi fá aftur eigur sínar. Þeim hefur enn ekki verið skilað.

 

Abranches Penicelo var handtekinn á ný þann 13. febrúar 2007 og sakaður um rán, en lögreglumaðurinn sem lagði fram kæruna var síðar grunaður um að hafa valdið dauða hans. Það mál var látið niður falla þann 13. mars 2007, en honum var haldið í fimm daga til viðbótar, þrátt fyrir að dómari hafi skipað að honum skyldi tafarlaust sleppt úr haldi. Þáverandi ríkissaksóknari landsins höfðaði mál gegn lögreglunni og hefja átti málflutning fyrir dómi þann 7. ágúst 2007, en málið var ekki dómtekið. Fjölskylda hans hefur ekki fengið upplýsingar um ástæður þess. Viku síðar var Abranches Penicelo drepinn.


Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

Bréfið í word-skjali

Bréfið í vefskjali







RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica