Hjálparákallsmál
Ekvador: Baráttukona fyrir mannréttindum í lífshćttu
Hjálparákall febrúar 2009
Esther Landetta er framákona í tveimur hérađssamtökum er helga sig rannsóknum og upplýsingagjöf um áhrif námavinnslu á heilsu og atvinnu íbúa ţar. Esther Landetta hefur veriđ í fararbroddi í viđleitni samtakanna Varnarsamkoma ánna okkar Gala, Chico, Tenguel og Siete, í Guayas-hérađi, viđ ađ skrá og fordćma opinberlega mengun í ánum. Esther Landetta er einnig félagi í Baráttukonur á Pachamama-vettvangnum, ţar sem konur ţróa hćfileika sína til ađ taka ţátt í mannréttindastarfi.
Vegna baráttu Esther Landetta réđust stađaryfirvöld í opinbera rannsókn á áhrifum námavinnslu á svćđinu og birtu skýrslu í apríl 2008 um mengun í ám. Síđan ţá hafa ofsóknir gegn henni magnast. Ţann 12. júlí 2008 var Esther Landetta vöruđ viđ ţví ađ leigumorđingjar hefđu veriđ ráđnir til ađ myrđa hana. Hún og börn hennar létu sig hverfa og njóta nú verndar stjórnvalda. Ríkissaksóknari landsins hefur hafiđ rannsókn á hótunum gegn henni. Ţeirri rannsókn miđar ekkert áfram. Hún getur ekki snúiđ heim aftur af ótta um líf sitt og fjölskyldu sinnar.
Hér ađ neđan eru bréf sem ţú getur prentađ út og sent til stjórnvalda:

