Hjálparákallsmál
Líbía: byggingarverkfræðingi haldið föngnum fyrir skoðanir sínar
Hjálparákall febrúar 2009

Fathi el-Jahmi
Byggingarverkfræðingurinn Fathi el-Jahmi hefur verið í haldi yfirvalda frá því í mars 2004 eftir að hann gagnrýndi leiðtoga Líbíu, Mu’ammar al-Gaddafi, og hvatti til pólitískra umbóta í viðtölum við alþjóðafjölmiðla. Fathi el-Jahmi hafði áður sætt fangelsi frá 2002 til 2004 fyrir að tjá þá skoðun sína að umbætur gætu ekki orðið í Líbíu án lagabreytinga og breytinga á stjórnmálum landsins.
Fathi el-Jahmi hefur verið haldið á sjúkrahúsi í Trípolí frá því í júlí 2007, en hann þjáist af hjartasjúkdómi, háum blóðþrýstingi og sykursýki. Yfirvöld neita að láta hann hafa vegabréf sitt aftur og fylgjast grannt með fjölskyldu hans. Óháð læknisrannsókn staðfesti að hann gæti sótt göngudeildarmeðferð og engar læknisfræðilegar ástæður liggja að baki þeirri ákvörðun að halda honum á sjúkrahúsinu.
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

