Rússland: baráttumaður gegn kynþáttafordómum í hættu
Hjálparákall febrúar 2009

Dmitrii Kraiukhin
Snemma morguns þann 1. ágúst 2008 var kveikt í heimili Dmitrii Kraiukhin og útidyrahurðinni læst til að hindra að þeir sem inni voru kæmust út. Dmitrii Kraiukhin er baráttumaður fyrir mannréttindum. Móðir hans, dóttir og barnabarn voru inni, en tókst að hringja á slökkvilið og sluppu ómeidd.
Dmitrii Kraiukhin er ritstjóri upplýsingaveitunnar CentrRus. Hann er einnig þekktur fyrir starf sitt gegn öfgaþjóðernishreyfingum í Rússlandi. Kvöldið sem árásin var gerð tók hann þátt í ungmennafundi um mannréttindafræðslu. Árásin var gerð í kjölfar ýmissa hótana gegn Dmitrii Kraiukhin, þar á meðal hótana sem skrifaðar voru á vegginn fyrir utan íbúð hans. Þann 3. ágúst barst honum nafnlaust bréf þar sem fullyrt var að íkveikjan tengdist beint hlutverki hans sem lykilvitni í réttarhöldum gegn öfgaþjóðernishreyfingunni Rússnesk þjóðareining.

Ummerki eftir íkveikjuna

Veggjakrot fyrir utan hús Dmitrii Kraiukhin
Lögregla neitaði að hefja formlega rannsókn á íkveikjunni og flokkaði hana sem smáafbrot. Málinu var vísað frá þann 13. ágúst á þeim forsendum að „ekki væri um glæpsamlegt athæfi að ræða af hálfu hinna ónafngreindu einstaklinga“. Amnesty International telur að árásunum sé ætlað að stöðva starf Dmitrii Kraiukhin gegn kynþáttahyggju í Rússlandi.
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:
