Hjálparákallsmál

Venesúela: ekkert réttlæti fyrir fórnarlamb nauðgunar

Hjálparákall mars 2009

Alexandra Hidalgo

Alexandra Hidalgo

 

Alexöndru Hidalgo var rænt í Karakas, höfuðborg Venesúela, þann 21. maí 2004. Henni var hent inn í sendiferðabíl, bundið fyrir augu hennar og henni ekið á afskekktan stað. Hópur manna nauðgaði henni og pyndaði í sjö og hálfan tíma. Einn þeirra bar hún kennsl á: fyrrum eiginmann sinn. Henni var síðan ekið aftur í miðborg Caracas og sleppt fyrir utan skóla dóttur hennar.

Alexandra Hidalgo skildi við mann sinn, Ivan Sosa Rivero, tæpum tveimur mánuðum fyrir árásina vegna endurtekins líkamlegs, sálræns og kynferðislegs ofbeldis af hans hálfu. Þau höfðu verið gift í 14 ár. Ivan Sosa Rivero, sem var undirofursti í her landsins, neitaði allri aðild að mannráninu. Þegar Alexandra gekk á hann hótaði hann að sögn að drepa hana og börn þeirra ef hún segði frá.

 

Þrátt fyrir hótunina hélt Alexandra Hidalgo ótrauð áfram og nýtti sér upplýsingar sem fundust í farsíma Ivan Sosa Rivero og bendluðu hann við árásina til að fá hann handtekinn. Hann var ákærður fyrir mannrán, nauðgun og fyrir að vera vitorðsmaður í bílþjófnaði og sat í varðhaldi í yfir fjóra mánuði. En ekki var réttað yfir honum og lögfræðingar hans fengu réttarhöldum yfir honum frestað aftur og aftur. Honum var sleppt á skilorði í apríl 2005 og fór í felur. Hann hefur enn ekki verið handsamaður.

 

Tveir árásarmannanna voru dæmdir í átta ára fangelsi, tveir voru sýknaðir og einn annar er einnig í felum. Alexandra Hidalgo óttast að Ivan Sosa Rivero sitji um líf hennar og fullyrðir að til hans hafi sést fyrir utan íbúð hennar í apríl 2008.

 

Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

Bréfið í word-skjali

Bréfið í vefskjali



 





RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica