Hjálparákallsmál

Mjanmar: þaggað niður í grínista

Hjálparákall mars 2009

Zarganar

Zarganar

Zarganar, sem er vinsæll grínisti, leikari og leikstjóri í Mjanmar og ötull gagnrýnandi herforingjastjórnarinnar í landinu, var dæmdur í 59 ára fangelsi í nóvember 2008. Amnesty International telur hann vera samviskufanga.

Í kjölfar fellibylsins Nargis, sem reið yfir Mjanmar í maí 2008, tók Zarganar forystu í átaki til að afla og dreifa hjálpargögnum. Hann var handtekinn 4. júní 2008 fyrir þátttöku sína í átakinu, eftir að hann gagnrýndi neyðarviðbrögð stjórnvalda í viðtali við erlenda fjölmiðla. Í viðtölunum lýsti Zarganar hörmungunum, sem ríkisreknir fjölmiðlar landsins sögðu ekki frá. Hann og aðrir sjálfboðaliðar söfnuðu einnig upplýsingum um eyðilegginguna sem hlaust af fellibylnum og neyðaraðstoðina í kjölfar hans, og fengu myndbandsupptökur og ljósmyndir frá svæðum sem fellibylurinn reið yfir. Að minnsta kosti 21 annar sjálfboðaliði hefur verið handtekinn fyrir að aðstoða þá sem lifðu fellibylinn af.

 

Amnesty International telur að heilsa Zarganar sé bág og hann geti átt á hættu að sæta pyndingum og annarri illri meðferð. Honum er nú haldið Myitkyina-fangelsi í Kachin-héraði í Norður-Mjanmar, sem er í um fjögurra daga fjarlægð frá fjölskyldu hans í Yangon. Fangar í Mjanmar þurfa iðulega að reiða sig á fjölskyldu sína til að fá lyf og viðbót við nauman matarskammt, en slíkt er ákaflega erfitt þegar föngum er haldið langt frá fjölskyldum sínum.

 

Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

Bréfið í word-skjali

Bréfið í vefskjali







RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica