Erítrea: trúarleiðtogi ofsóttur
Hjálparákall mars 2009

Abune Antonios
Abune Antonios er haldið í fangelsi í Erítreu. Hann er 81 árs.
Abune Antonios var settur í embætti patríarka í erítreísku rétttrúnaðarkirkjunni í Asmara árið 2003. Hann varðist íhlutun stjórnvalda í trúarleg efni og árið 2004 mótmælti hann fangelsun þriggja presta rétttrúnaðarkirkjunnar, en þeir voru dæmdir í leynilegum réttarhöldum. Kirkjuleg yfirvöld sviptu hann völdum í janúar 2005, að því er virðist vegna mótmæla hans gegn stefnu stjórnvalda.
Hann var settur í stofufangelsi þann 13. janúar 2006, en fluttur þann 28. maí 2007 á óþekktan stað í Asmara, höfuðborg Erítreu. Amnesty International telur hann vera samviskufanga, sem sitji í fangelsi fyrir friðsamlega iðkun tjáningar- og trúarfrelsis síns. Stjórnarskrá Erítreu tryggir þessi réttindi.
Ýmsum trúarhreyfingum er bannað að starfa í Erítreu. Þeirra á meðal eru yfir 35 lútherskir söfnuðir, en um 2.000 meðlimir þeirra söfnuða eru nú í fangelsi við illan aðbúnað.
Amnesty International hefur miklar áhyggjur af heilsu Abune Antonios. Talið er að hann hafi ekki fengið læknisaðstoð vegna sykursýki sem hrjáir hann. Mörgum þeirra, sem sæta fangelsi í Erítreu fyrir að iðka trú sína, er haldið við vondan aðbúnað í afskekktum herstöðvum, neðanjarðarklefum og flutningagámum. Þeirra á meðal eru lúthersk-kristnir, vottar Jehóva, meðlimir rétttrúnaðarkirkjunnar og múslimar. Sumir hafa orðið alvarlega veikir og verið neitað um læknisaðstoð. Amnesty International hefur fengið fréttir um að sumir fanganna hafi sætt ítrekuðum barsmíðum og verið bundnir í sársaukafullri líkamsstöðu til að fá þá til að afneita trú sinni.
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:
