Miðbaugs-Gínea: samviskuföngum haldið í einangrun
Hjálparákall apríl 2009

Lögreglustöðin í Malabo í Miðbaugs-Gíneu
Fimm fyrrum félögum í Framfaraflokki Miðbaugs-Gíneu er enn haldið í einangrun í Malabo í Miðbaugs-Gíneu við aðstæður sem jafngilda grimmilegri meðferð.
Gerardo Angüe Mangue, Bonifacio Nguema Ndong, Cruz Obiang Ebele, Juan Ecomo Ndong, Emiliano Esono Michá og Gumersindo Ramírez Faustino sættu geðþóttahandtökum í mars og apríl 2008. Snemma í júní voru fimm af mönnunum sex fluttir frá lögreglustöð í Malabo í Black Beach fangelsið.
Gerardo Angüe Mangue var fluttur beint í Black Beach fangelsið eftir handtökuna. Mennirnir voru neyddir til að undirrita yfirlýsingar og síðan ákærðir. Þeir fengu síðan að hitta lögfræðinga nokkrum dögum fyrir réttarhöldin yfir þeim. Réttarhöldin fóru fram dagana 17.-19. júní 2008 og voru þeir fundnir sekir um ólöglega vopna- og skotfæraeign. Fimm mannanna voru dæmdir í sex ára fangelsi. Bonifacio Nguema Ndong var dæmdur í eins árs fangelsi og leystur úr haldi í mars 2009. Engin sönnunargögn voru lögð fram í réttinum til stuðnings ákærunni og engin vopn fundust á þeim eða á heimilum þeirra.
Sérstakur eftirlitsfulltrúi SÞ um pyndingar heimsótti þá í nóvember og vakti athygli á því að þeim væri haldið í einangrun. Amnesty International hefur lýst yfir áhyggjum sínum vegna þess að flestir mannanna voru pyndaðir meðan á varðhaldsvist þeirra stóð; þeir sættu barsmíðum, raflosti og voru látnir hanga úr loftinu.
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:
