Hjálparákallsmál

Íran: baráttumaður fyrir réttindum verkafólks ofsóttur

Hjálparákall apríl 2009

Mansour Ossanlu

Mansour Ossanlu

 

Mansour Ossanlu er strætóbílstjóri og baráttumaður fyrir réttindum verkafólks og öðrum mannréttindum. Hann afplánar nú fimm ára fangelsisdóm í Íran. Amnesty International telur hann vera samviskufanga, sem haldið sé fyrir það eitt að nýta sér félagafrelsi sitt með friðsamlegum hætti.

Mansour Ossanlu er forystumaður í Verkalýðsfélagi starfsfólks Strætisvagna Teheran og nágrennis, sem er aðili að Alþjóðasambandi flutningafólks  (International Transport Borkers’ Federation). Áður en hann var handtekinn hafði hann starfað að réttindum verkafólks í Íran. Hann hefur tvisvar áður verið handtekinn, í samtals rúma níu mánuði, fyrir verkalýðsbaráttu sína. Réttað var yfir honum í febrúar 2007 og hann síðar dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir „aðgerðir gegn þjóðaröryggi. Hann fór úr landi meðan hann beið þess að máli hans yrði áfrýjað og var handtekinn á ný þann 10. júlí 2007, þegar hann snéri aftur eftir fundi í Evrópu með öðru baráttufólki fyrir réttindum verkafólks. Áfrýjunarréttur í Teheran staðfesti fangelsisdóm hans þann 30. október 2007. Svo virðist, hins vegar, sem að dómurinn hafi aldrei verið birtur opinberlega, sem stangast á við írönsk lög. Án skriflegs úrskurðar geta lögfræðingar hans ekki áfrýjað úrskurðinum.

 

Amnesty International hefur áhyggjur af bágu heilsufari Mansour Ossanlu og telur að hann fái ekki læknisþjónustu, sem hann þarf mjög á að halda. Parvaneh Ossanlu, eiginkona hans, segir að hann hafi ekki fengið að hitta lögfræðinga sína frá því að hann var fluttur í fangelsi í Karaj, vestur af Teheran, þann 31. ágúst 2008.

 

Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

Bréfið í word-skjali

Bréfið í vefskjali







RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica