Indónesía: mótmælendur sæta pyndingum og fangelsun
Hjálparákall apríl 2009

Johan Teterissa
Þann 29. júní 2007 leiddi Johan Teterissa 21 manna hóp í friðsamlegum mótmælum fyrir framan forseta Indónesíu, Susilo Bambamg Yudhoyono. Nú bíður einn úr hópnum réttarhalda, en hinir afplána sjö til tuttugu ára fangelsisdóma.
Þetta gerðist við athöfn á vegum stjórnvalda í Ambon, höfuðborg Maluku-héraðs. Mótmælendurnir 22, sem flestir eru kennarar og bændur, dönsuðu hefðbundinn stríðsdans frammi fyrir forsetanum. Síðan breiddu þeir úr fána sjálfstæðishreyfingar Suður-Maluku. Lögregla leiddi þá af vettvangi og barði þá með riffilskeftum. Barsmíðarnar héldu áfram meðan þeim var ekið burt.
Áreiðanlegar heimildir herma að þeir hafi verið fluttir milli þriggja lögreglustöðva næstu 11 daga. Barsmíðarnar héldu áfram á hverri stöð, en verstu meðferð fengu þeir í gagnhryðjuverkamiðstöðinni (Densus 88) í Tantui-herstöðinni. Hermenn þar lömdu suma fangana með riffilskeftum, neyddu þá til að skríða á maganum yfir heitt malbik, hýddu þá með rafmagnsköplum og neyddu biljarðkúlum upp í munn þeirra. Hleypt var af skotum rétt við eyru sumra fanganna, sem að sögn olli heyrnarskerðingu í sumum tilvikum.
Sumir fanganna voru neyddir til að undirrita yfirlýsingu þess efnis að þeir þyrftu ekki á lögfræðingi að halda. Aðrir fengu lögfræðinga sem hvöttu þá til að játa á sig sakir og afsala sér rétti til áfrýjunar. Johan Teterissa, forystumaður mótmælanna, var dæmdur í ævilangt fangelsi þann 4. apríl 2008. Sá dómur var mildaður í 15 ára fangelsi í áfrýjunarrétti.
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:
