Angóla: fyrrum blaðamaður er samviskufangi
Hjálparákall maí 2009
Fyrrum blaðamaðurinn José Fernando Lelo afplánar nú 12 ára fangelsi í Angóla fyrir glæpi gegn þjóðaröryggi og hvatningu til uppreisnar. Amnesty International telur hann samviskufanga sem hafi verið fangelsaður fyrir friðsamlega tjáningu skoðana sinna.
Meðan hann starfaði sem blaðamaður skrifaði Fernando Lelo greinar þar sem stefna stjórnvalda í Cabinda-héraði var gagnrýnd. Hann var handtekinn eftir að sex hermenn ákærðu hann, að sögn fyrir að hafa látið þá fá peninga og efni til uppreisnar. Hermennirnir sögðu síðar að þeir þekktu hann ekki og hefðu verið pyndaðir og neyddir til að bera Lelo sökum. Þrátt fyrir framburð þeirra var Fernando Lelo haldið í yfir fjóra mánuði í varðhaldi, án ákæru, í São Paulo-fangelsi í höfuðborginni Luanda. Það er lengra varðhald en þeir 90 dagar sem angólsk lög leyfa að hámarki.
Herdómstóll í Cabinda réttaði yfir Fernando Lelo frá 5.-11. júní 2008. Þar sem hann er óbreyttur borgari hefði átt að rétta yfir honum fyrir borgaralegum dómstóli. Þann 16. september 2008 var hann dæmdur í 12 ára fangelsi. Hermennirnir sex voru dæmdir um leið. Fimm þeirra voru dæmdir sekir um tilraun til vopnaðrar uppreisnar og brot gegn hernum og dæmdir í 13 ára fangelsi. Sjötti hermaðurinn var sýknaður. Svo virðist sem að rétturinn hafi ekki getað sannað að fundur Fernando Lelo og hermannanna hafi verið haldinn.
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:
