Egyptaland: Mohamed Abd Rahim el Sharkawi - 14 ár í varðhaldi án ákæru eða réttarhalda
Hjálparákall maí 2009

Mohamed el Sharkawi
Mohamed el Sharkawi, 59 ára gömlum pakistönskum verkfræðingi af egypskum ættum, hefur verið haldið í fangelsi í 14 ár án ákæru eða réttarhalda. Hann er einn þeirra þúsunda sem haldið er í Egyptalandi á grundvelli neyðarlaga sem gilt hafa í landinu frá 1981.
Hann var fluttur með valdi frá Pakistan að kröfu egypskra stjórnvalda, að sögn fyrir meinta glæpi gegn þjóðaröryggi. Hann var sýknaður af ákærunum árið 1996. Hann greindi frá því að hann hefði verið pyndaður í haldi egypskra stjórnvalda. Mohamed el Sharkawi þjáist af bakverkjum og segir að heilsa sín sé slæm vegna pyndinga og ófullnægjandi læknisaðstoðar.
Yfirvöld fundu skrif í klefa hans í Liman Tora-fangelsi nærri Kaíró í júlí 2008, þar sem hann kvartaði yfir varðhaldsvistinni. Þau refsuðu honum fyrir skrifin með því að láta flytja hann í Wadi al Gadid-fangelsið í eyðimörkinni í Vestur-Egyptalandi og lögfræðingur hans og fjölskylda hafa ekki fengið að heimsækja hann, þrátt fyrir leyfi frá ríkissaksóknara.
Dómstólar hafa 15 sinnum skipað svo fyrir að hann skyldi leystur úr haldi, nú síðast í apríl 2009. Ný varðhaldsskipun hefur jafnharðan komið í kjölfarið. Árið 2007 kvað starfshópur Sameinuðu þjóðanna um geðþóttavarðhald úr um að hann sætti geðþóttavarðhaldi og mæltist til þess að hann og 45 aðrir fangar, sem svipað var ástatt um, yrðu tafarlaust leystir úr haldi.
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:
