Ísrael/Herteknu svæðin: Dr. Ghassan Khaled - í varðhaldi án ákæru eða réttarhalda
Hjálparákall júní 2009

Dr. Ghassan Khaled með föður sínum, Sharif Omar
Dr. Ghassan Khaled, sem kennir við háskóla í Nablus á Vesturbakkanum, hefur sætt varðhaldi ísraelska hersins frá 3. apríl 2008. Hann er einn hundruða Palestínumanna sem sæta slíku varðhaldi, þar sem hernum er gert kleift að halda mönnum ótímabundið, án ákæru eða réttarhalda.
Ghassan Khaled sætti fyrst varðhaldsvist frá 16. janúar til 19. mars 2008. Hann hafði ekki aðgang að lögfræðingi í þrjár vikur og lýsti því yfir fyrir rétti að hann hefði sætt pyndingum og annarri illri meðferð af hálfu öryggissveita Ísraela. Hann fékk innvortis blæðingar meðan á varðhaldsvistinni stóð.
Ghassan Khaled var ákærður þann 6. mars 2008 fyrir „þjónustu við óleyfileg samtök“. Dómari við herdómstól fyrirskipaði þann 12. mars að hann skyldi látinn laus gegn tryggingu og gaf í skyn að ákærurnar gegn honum væru tilhæfulausar. Herinn handók Ghassan Khaled aftur þann 31. mars og úrskurðaði hann í varðhald í sex mánuði. Herdómstóll neitaði að staðfesta úrskurðinn, en snéri við ákvörðun sinni eftir að öryggissveitir staðhæfðu að Ghassan Khaled væri að skipuleggja „hernaðaraðgerð“.
Ghassan Khaled neitaði þessum nýju og órökstuddu ásökunum fyrir yfirrétti þann 22. maí. Áfrýjun hans var hafnað. Sönnunargögn öryggisyfirvalda Ísrael gegn honum teljast enn leyndarmál. Varðhaldsvist hans var framlengd þann 30. mars 2009 í aðra sex mánuði. Þann 5. apríl nam herdómari framlenginguna úr gildi og skipaði að Ghassan Khaled skyldi leystur úr haldi. Herinn áfrýjaði úrskurðinum og þann 26. apríl var hann aftur dæmdur í varðhald, en nú í fjóra mánuði.
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:
