Hjálparákallsmál

Rússneska sambandsríkið: Murad Bogatyrev - dauði í lögregluvarðhaldi

Hjálparákall júní 2009

Murad Bogatyrev

Murad Bogatyrev

 

Þann 8. september 2007, klukkan fimm að morgni, handtóku lögreglumenn frá Rússlandi og Ingúsetíu Murad Bogatyrev, 37 ára gamlan mann, á heimili hans í Ingúsetíu. Hann var fluttur á lögreglustöðina í Malgobek-héraði, þar sem hann lést nokkrum klukkustundum síðar, að sögn vegna pyndinga og annarrar illrar meðferðar.

Ættingjar biðu fyrir utan lögreglustöðina og klukkan 8 sama morgun sáu þeir nakinn líkama Murad Bogatyrev borinn út úr lögreglustöðinni. Lögregla sagði þeim að hann hefði látist af hjartaáfalli og verið væri að flytja líkama hans til réttarkrufningar. Þegar lík hans var afhent fjölskyldu hans síðar sama dag tóku ættingjar hans ljósmyndir og myndband af áverkum hans. Amnesty International hefur séð myndbandið og á því sjást áverkar á fótum, höndum og höfði. Dánarvottorð hans segir að hann hafi látist af alvarlegu hjartaáfalli og hjartasjúkdómi. Á vottorðinu er einnig lýst áverkum við rifbein og brákuðum rifbeinum og bringubeini og umfangsmiklum áverkum á útlimum. Fjölskylda hans fullyrðir að engir áverkar eða marblettir hafi verið á líkama hans deginum áður og hann hafi aldrei leitað til læknis vegna hjartveilu.

Í október hóf embætti saksóknara rannsókn á því hvort lögreglumennirnir hefðu gerst brotlegir. Að því er Amnesty International best veit hefur þeirri rannsókn ekkert miðað áfram.

 

Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

Bréfið í word-skjali

Bréfið í vefskjali







RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica