Hondúras: Garífuna-samfélagið í San Juan Tela -
Hjálparákall júní 2009

Wilfredo Guerrero og Jessica García
Leiðtogar og meðlimir Garífuna-samfélagsins í þorpinu San Juan Tela í Norður-Hondúras sæta nú ofsóknum. Svo virðist sem að ætlunin sé að neyða þá til að láta af hendi land sem þeir hafa búið á um aldir til fasteignafélagi sem vill koma á laggirnar ferðamannastað á svæðinu.
Þann 5. júní 2008 rændi um 10 manna hópur Santos Feliciano Aguilar Álvares, lömdu hann og hótuðu lífláti. Talið er að þeir séu öryggisverðir fyrirtækisins sem vill kaupa landið. Meðan á árásinni stóð, sem var gerð á lóð fasteignafyrirtækisins, heyrði hann þá segja „drepum hann og gröfum hann hérna“.
Jessica García, sem er einn leiðtoga samfélagsins, hefur sætt hótunum og ofbeldi við margvísleg tækifæri. Þann 22. júní 2006 beindi óþekktur maður að henni byssu og neyddi hana til að skrifa undir skjal þar sem stóð að fasteignafyrirtækið ætti land Garífuna-samfélagsins.
Annar leiðtogi samfélagsins, Wilfredo Guerrero, hefur einnig sætt ofbeldi og hótunum. Kveikt var í húsi hans og það brennt til grunna árið 2005 og árið 2007 var hann handtekinn, þó að saksóknari hafi síðar skipað lögreglunni að sleppa honum.
Enginn hefur verið sóttur til saka fyrir ofbeldið og hótanirnar.
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:
