Hjálparákallsmál
Pakistan: Atiq-ur Rehman - vísindamaður hverfur
Hjálparákall ágúst 2009

Atiq-ur Rehman
Atiq-ur Rehman vann fyrir Kjarnorkumálastofnun Pakistan. Þann 25. júní 2004 fór hann á markað að kaupa mat fyrir brúðkaupsgesti. Hann ætlaði að kvænast seinna um daginn. Atiq-ur Rehman sneri ekki heim aftur. Lögreglan segir að hann sé í haldi leyniþjónustu.
Frá því Pakistan hóf þátttöku síðla árs 2001 í hinu svokallaða „stríði gegn hryðjuverkum“, undir forystu Bandaríkjanna, hafa hundruð manns, sem grunaðir eru um tengsl við hryðjuverkastarfsemi, sætt geðþóttahandtöku og verið haldið í leynilegum fangelsum. Þeir hafa engan aðgang að fjölskyldum sínum, lögfræðingum eða dómstólum, njóta ekki lagaverndar og eiga á hættu að sæta pyndingum og annarri illri meðferð. Þegar fjölskylda Atiq-ur Rehman hafði samband við lögregluna á staðnum var henni tjáð að hún gæti ekki lagt inn kæru. Lögreglan gaf síðan út yfirlýsingu um að hann væri týndur, en virðist ekki hafa rannsakað hvarfið. Ýmsir embættismenn hafa komið að máli við fjölskyldu hans, en hafa einungis getað bent á aðra embættismenn. Fulltrúar hersins hvöttu fjölskylduna til að þegja og forðast fjölmiðlaumfjöllun og málarekstur fyrir dómstólum.
Fjölskyldan hóf málarekstur í júní 2006 fyrir yfirrétti í Lahore. Aðstoðarríkissaksóknari Pakistan sagði fyrir hæstarétti þann 11. maí 2007 að engin leið væri að hafa uppi á Atiq-ur Rehman.
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

