Kósovó: Daka Asani myrtur
Hjálparákall ágúst 2009

Daka Asani
Daka Asani, sem tilheyrði Róma-samfélaginu í Kósovó, var rænt á markaði í bænum Uroševac/Ferizaj þann 1. ágúst 1999. Líkami hans fannst í ómerktri gröf nærri Pristina ári síðar. Líkamsleifar 176 annarra Albana, Serba og Róma-fólks fundust einnig á sama stað.
Kennsl voru borin á líkamsleifar Daka Asani með DNA samanburði við sýni frá fjölskyldu hans. Líkamsleifum hans var skilað til fjölskyldunnar þann 1. desember 2006. Henni var sagt að hann hafi verið skotinn nokkrum sinnum í höfuð og skrokk.
Þúsundum manna var rænt meðan vopnuð átök stóðu yfir í Kósovó árið 1999. Serbnesk stjórnvöld létu um það bil 3.000 manns af albönskum uppruna hverfa og Frelsisher Kósovó rændi og drap um 800 Serba og Róma-fólk. Sendinefnd Sameinuðu þjóðanna í Kósovó hafði upphaflega það hlutverk að rannsaka þvinguð mannshvörf þar. Eftir þrýsting frá Amnesty International hóf sendinefndin loks rannsókn. Í desember 2008 tók Evrópusambandið við rannsókn og ákærum vegna stríðsglæpa í Kósovó.
Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir fjölskyldunnar hefur engin rannsókn enn verið hafin á morðinu á Daka Asani.
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:
