Hjálparákallsmál
Eþíópía: Birtukan Mideksa - baráttukona fyrir lýðræði í lífstíðarfangelsi
Hjálparákall ágúst 2009

Birtukan Mideksa
Birtukan Mideksa er nú haldið í einangrun, en hún var dæmd í lífstíðarfangelsi árið 2006 fyrir forystu í mótmælum gegn kosningaúrslitum í landinu árið 2005. Um 187 mótmælendur og að minnsta kosti 6 lögregluþjónar létu lífið í mótmælunum. Ýmsir aðrir leiðtogar stjórnarandstöðunnar, blaðamenn og baráttumenn fyrir mannréttindum voru dæmdir um leið og hún.
Um mitt ár 2007 skrifaði meirihluti þeirra, sem þá voru dæmdir, undir afsökunarbréf og voru náðaðir og sleppt úr haldi í framhaldinu. Meðal þeirra var Birtukan Mideksa. Ekki er ljóst hvaða skilyrði voru sett þegar fólkið var náðað.
Í nóvember 2008 flutti Birtukan Mideksa erindi á ráðstefnu í Svíþjóð, þar sem hún talaði um viðræðurnar sem leiddu loks til þess að henni var sleppt úr haldi. Þegar hún sneri heim til Addis Ababa gaf ríkisstjórn Eþíópíu henni þrjá daga til að draga ummæli sín til baka. Hún neitaði að gera það. Þann 28. desember var hún handtekin aftur. Náðunin var felld úr gildi og lífstíðardómurinn gekk aftur í gildi.
Henni er nú haldið í klefa sem sagður er vera tveir fermetrar og fyrrum fangar segja að oft sé óbærilega heitur. Amnesty International hefur áhyggjur af illri meðferð á henni vegna einangrunarinnar, en einungis fjögurra ára dóttir hennar og móðir hennar og systir fá að heimsækja hana. Amnesty International álítur hana samviskufanga.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins getur beitt sér vegna umtalsverðra áhrifa sinna í Eþíópíu og þrýst á að Birtukan Mideksa verði leyst úr haldi. Vinsamlega skrifaðu og þrýstu á Evrópusambandið.
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

