Hjálparákallsmál

Írak: Walid Yunis Ahmad - í haldi án réttarhalda í níu ár

Hjálparákall september 2009

Walid Yunis Ahmad var handtekinn þann 6. febrúar 2000 í Erbil, höfuðborg Kúrdistan-héraðs í Írak. Hann vann fyrir útvarps- og sjónvarpsstöð á svæðinu, þar sem hann hjálpaði til við framleiðslu á efni og þýddi á kúrdísku, arabísku og fleiri mál.

Skömmu áður en hann var handtekinn hafði Walid Yunis Ahmad farið á fund Íslömsku hreyfingar Kúrdistan, sem var löglegur stjórnarandstöðuflokkur. Eftir fundinn fékk hann far með bíl sem lögreglan stöðvaði. Við leit í bílnum fann lögreglan að sögn sprengiefni og handtók bæði ökumann bifreiðarinnar og Walid Yunis Ahmad, þó að hann neitaði allri vitneskju um sprengiefnin. Ökumanninum var sleppt þremur mánuðum síðar.

Upphaflega var ekki vitað um afdrif Walid Yunis Ahmad og yfirvöld neituðu að þau hefðu upplýsingar um hann. Þremur árum eftir að hann var látinn hverfa upplýsti Rauði krossinn fjölskyldu hans um að hann væri á lífi og í haldi yfirvalda. Fjölskyldan fékk síðan að heimsækja hann í fangelsi í Erbil. Walid Yunis Ahmad fullyrðir að hann hafi sætt pyndingum þau þrjú ár sem hann var látinn hverfa, að hann hafi séð aðra fanga sæta pyndingum og að hann hefði farið í hungurverkfall.

Þann 10. mars 2009 sagði mannréttindaráðherra héraðsstjórnvalda í Kúrdistan Amnesty International að þegar Walid Yunis Ahmad hefði verið handtekinn hefðu „engin lög“ átt við mál hans en yfirvöld væru ófús að sleppa honum úr haldi af því að þau teldu hann vera „hættulegan mann“.


Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

Bréfið í word-skjali

Bréfið í vefskjali



 




RSS:

RSS
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica cmscms - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.