Hjálparákallsmál
Lýðveldið Kongó: pyndingar í fangelsi
Hjálparákall september 2009

Paul Ndokayi
Paul Ndokayi ofursti, sem var yfirmaður áætlunar um að afvopna fyrrum hermenn í Kongó, var handtekinn í Kinshasa þann 27. nóvember 2006. Meðan hann var í varðhaldi sætti hann pyndingum og annarri illri meðferð. Honum er nú haldið í aðalfangelsi Kinshasa, Centre de Detention et Rééducation de Kinshasa (CPRK), þar sem hann fær ekki læknisþjónustu vegna áverka er hann hlaut þegar hann sætti pyndingum.
Daginn eftir að hann var handtekinn var Paul Ndokayi fluttur í Kin-Mazière, höfuðstöðvar sérsveita lögreglunnar, þar sem hann var laminn og pyndaður í fimm klukkutíma. Hann var bundinn, hlekkjaður á ökklum og neyddur til að liggja á gólfinu. Hann var barinn með beltum, kylfum og prikum, laminn í hausinn og stunginn með hnífi í fótinn. Hann missti meðvitund en pyndararnir vöktu hann til meðvitundar og brutu svo handlegg hans á nokkrum stöðum með viðarbút.
Þegar fulltrúar Amnesty International hittu Paul Ndokayi í fangelsi í júní 2007 þjáðist hann af verkjum um allan líkamann og átti erfitt með að hreyfa hendurnar. Hann kvartaði undan verk í eyrum og að það blæddi úr þeim og að hann ætti erfitt með heyrn. Hann og ýmsir aðrir fyrrum liðsforingjar í hernum hafa verið ákærðir fyrir hryðjuverk. Hann hefur aldrei verið leiddur fyrir rétt og hefur verið meinað að fá skorið úr fyrir dómstólum um lögmæti handtöku sinnar og varðhaldsvistar.
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

