Grikkland: Konstantina Kuneva - sýruárás á verkalýðsfrömuð
Hjálparákall september 2009

Konstantina Kuneva
Konstantina Kuneva, búlgörsk farandverkakona og verkalýðsfrömuður hlaut alvarlega áverka þegar maður henti brennisteinssýru í andlit hennar. Árásin var gerð í Aþenu þann 22. desember 2008. Í kjölfar hennar lá Kuneva í dái á spítala í nokkra daga. Hún missti sjón á öðru auga og hefur takmarkaða sjón á hinu. Barkinn á henni og raddböndin sködduðust alvarlega og hún þarf að fara í margar aðgerðir.
Konstantina Kuneva er sagnfræðingur að mennt og fluttist til Grikklands árið 2001 til að afla sér fjár til að borga fyrir læknisþjónustu fyrir son sinn. Hún vann við ræstingar og fór að berjast fyrir réttindum sínum og samstarfsfólksins. Hún varð loks ritari verkalýðsfélags. Hún gagnrýndi að vinnuveitendur drægju að greiða laun starfsmanna í allt að fimm mánuði og að þeir greiddu ekki lögbundnar greiðslur til að starfsfólk ætti rétt á velferðarþjónustu. Margir starfsmannanna voru farandverkafólk. Vinna hennar fyrir verkalýðsfélagið leiddi til þess að vinnuveitandi hennar lét hana vinna á erfiðari vöktum. Hún var einnig beitt þrýstingi að hætta og fékk nafnlausar hótanir í gegnum síma.
Lögreglan hefur hafið rannsókn á árásinni en mannréttindahópar hafa gagnrýnt áherslu hennar á einkalíf Kuneva og vanrækslu á því er lýtur að verkalýðsstörfum hennar. Lögfræðingar hennar hafa einnig verulegar áhyggjur af því að málinu verði lokað og trúa því að rannsókn málsins í upphafi hafi verið gölluð.
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:
