Nepal: Rita Mahato - ógnað fyrir að verja mannréttindi kvenna
Hjálparákall október 2009

Rita Mahato
Rita Mahato vinnur sem heilsuráðgjafi á Endurhæfingarstöð kvenna í Siraha-héraði í Nepal. Henni hefur verið hótað dauða, nauðgun og mannráni vegna vinnu sinnar í þágu kvenna sem hafa verið beittar ofbeldi.
Starf Ritu Mahato á endurhæfingarstöðinni felst meðal annars í því að skrá ofbeldi gegn konum. Hún tilkynnir það til lögreglu, aðstoðar lögreglu að handtaka ofbeldismenn með því að bera vitni, og veitir konunum ýmsa aðra aðstoð. Hún hefur orðið fyrir aðkasti af hálfu samfélagsins vegna starfa sinna.
Í júní 2007 réðst hópur um 60-70 manna til inngöngu í skrifstofu endurhæfingarstöðvarinnar. Þeir hótuðu Ritu Mahato og öðru starfsliði að þeim yrði nauðgað og þau drepin og skipuðu þeim að yfirgefa þorpið innan fimm daga. Í sama mánuði réðst um 20 manna hópur á skrifstofur stöðvarinnar og hentu múrsteinum í starfslið og skrifstofu. Bæði málin voru kærð til lögreglu og beiðni lögð inn um vernd þeim til handa. Lögreglan hefur enn ekki gripið til neinna aðgerða.
Rita Mahato fær enn hótanir og sætir mismunun vegna starfa sinna. Þó hún óttist um líf sitt berst hún áfram fyrir mannréttindum kvenna.
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:
