Hjálparákallsmál

Níkaragva: baráttukonum fyrir mannréttindum ógnað

Hjálparákall október 2009

Aktivistar_i_Nikaragua 

Ana María Pizarro, Juanita Jiménez, Lorna Norori, Luisa Molina Arguello, Marta María Blandón, Martha Munguía, Mayra Sirias, Violeta Delgado og Yamileth Mejía eru vel þekktar baráttukonur fyrir mannréttindum í Níkaragva. Þær hafa unnið fyrir margvísleg félagasamtök.

Í október 2007 lögðu Mannréttindasamtök Níkaragva, sem eru félagasamtök er njóta stuðnings kaþólsku kirkjunnar í Níkaragva, fram kvörtun gegn konunum níu. Kvörtunin tengist aðild kvennanna að máli níu ára stúlku sem gekkst undir löglega fóstureyðingu árið 2003 eftir að henni var nauðgað og hún varð ófrísk.

Nú eru tvö ár frá því að kvörtunin var lögð fram og engar fréttir hafa borist af því hvenær mál þeirra verður til lykta leitt. Amnesty International óttast að kvörtunin hafi verið lögð fram vegna þess eins að konurnar hafa starfað að mannréttindabaráttu kvenna við að tryggja aðgengi kvenna og stúlkna að öruggri og góðri heilsugæslu er lýtur að kynheilsu þeirra.

Samtök kvennanna börðust gegn breytingum á lögum árið 2006 sem leggja blátt bann við öllum fóstureyðingum í Níkaragva. Lögin leyfa ekki neinar undantekningar. Vegna þess neyðast konur og stúlkur, sem eiga á hættu að missa heilsuna eða jafnvel líf sitt ef þær verða ófrískar, til að ljúka meðgöngunni. Undantekningar eru heldur ekki gerðar þegar um nauðgun eða sifjaspell er að ræða.

Nú er hægt að fangelsa konur fyrir að sækjast eftir fóstureyðingum og heilsugæslustarfsfólk á refsingu yfir höfði sér ef það veitir nauðsynlega læknisþjónustu til að bjarga lífi ófrískrar konu eða koma í veg fyrir að heilsa hennar hljóti varanlegan skaða af.

Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

Bréfið í word-skjali

Bréfið í vefskjali







RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica