Paragvæ: Yakye Axa og Sawhoyamaxa frumbyggjasamfélögin eiga undir högg að sækja
Hjálparákall október 2009

Fulltrúar Yakye Axa og Sawhoyamaxa á World Social Forum 2009
Í meira en 10 ár hafa 90 fjölskyldur sem tilheyra Yakye Axa frumbyggjasamfélaginu búið á lítilli og gróðurlausri landræmu milli hraðbrautar og stórs nautgripabús sem hafa gleypt búsvæði þeirra. Nærri þeim býr líka svipaður fjöldi Sawhoyamaxa frumbyggja við vegkant. Stórbændur hafa keypt landið þar sem Yakye Axa og Sawhoyamaxa hafa búið um langan aldur. Án aðgengis að landinu geta þessi samfélög ekki lengur veitt fisk, ræktað matvæli eða stundað annað það er þau þurfa til að geta lifað með þeim hætti sem þau hafa lengi gert.
Stjórnvöld í landinu hafa ekki veitt fólkinu aðgang að heilsugæslu með þeim afleiðingum að margir hafa dáið að nauðsynjalausu, börn meðal annarra. Samfélögin hafa sameinast í þrýstingi á stjórnvöld í Paragvæ um að leysa úr landadeilum þeirra.
Samfélögin fengu hjálp frá paragvæsku félagasamtökunum Tierraviva og Miðstöð réttlætis og alþjóðalaga (Centre for Justice and International Law) og fóru með mál sitt fyrir Mannréttindanefnd Ameríkuríkja og síðan til Mannréttindadómstóls Ameríkuríkja. Dómstóllinn úrskurðaði í málum Yakye Axa og Sawhoyamaxa samfélaganna árið 2005 og 2006. Stjórnvöldum í Paragvæ var veittur þriggja ára frestur til að skila landi samfélaganna aftur til þeirra. Frestur dómstólsins í báðum málunum er nú liðinn.
Samfélögin verða sífellt örvæntingafyllri og hvöttu Amnesty International í nóvember 2008 til að styðja málstað sinn. José González, sem tilheyrir Sawhoyamaxa samfélaginu sagði Amnesty International: „Við viljum að þið sýnið okkur samstöðu“.
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:
