Hjálparákallsmál

Ísrael/herteknu svæðin: Khaled Jaradat í fangelsi án ákæru eða réttarhalda

Hjálparákall desember 2009

 

Ísraelsk stjórnvöld handtóku Khaled Hussein ‘Abd al-Karim Jaradat, grunnskólakennara í þorpinu Silat al-Harthiya á Vesturbakkanum, þann 3. mars 2008. Honum er haldið í Ketziot-fangelsi í Ísrael án ákæru eða réttarhalda.

Mánuði eftir að hann var handtekinn úrskurðuðu ísraelsk yfirvöld hann í 6 mánaða varðhald. Sá úrskurður var framlengdur um 6 mánuði í október 2008 og aftur í apríl 2009.

Ísraelsk öryggisyfirvöld fullyrða að Khaled Jaradat sé félagi í róttækri hreyfingu Palestínumanna, íslamska jihad, sem hefur framið ofbeldisverk gegn ísraelskum borgurum og er bönnuð í Ísrael. Þau hafa ekki lagt fram nein sönnunargögn máli sínu til stuðnings og lögfræðingur hans getur ekki véfengt fullyrðingar þeirra fyrir rétti.

Khaled Jaradat hefur sætt slíkri varðhaldsvist nokkrum sinnum áður, síðast frá ágúst 1998 til maí 2001, en eftir að þeirri varðhaldsvist lauk var honum skipað að yfirgefa ekki heimaþorp sitt í ár. Börn hans hafa alist upp án föður síns langtímum saman. Eiginkona hans, Um Hadi, getur nú ekki heimsótt hann vegna þess að heimsóknarleyfi hennar rann út í mars 2009 og hefur ekki verið endurnýjað.

 

Þrýstu á stjórnvöld !

Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

Bréfið í word-skjali

Bréfið í vefskjali







RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica