Hjálparákallsmál

Rússneska sambandsríkið: Zelimkhan Murdalov - mannshvarf í Tétsníu

Hjálparákall desember 2009

 

Zelimkhan Murdalov

 

Fjölskylda Zelimkhan Murdalov hefur ekki séð hann frá því 2. janúar 2001 þegar lögreglumenn frá lögreglustöðinni í Oktiabrskii-héraði í Grosní í Tétsníu handtóku hann. Hann var grunaður um að hafa ólögleg fíkniefni í fórum sínum.

Fjölskylda hans fór nokkrum sinnum á lögreglustöðina en var meinaður aðgangur. Lögreglan heldur því fram að honum hafi verið sleppt þann 5. janúar, þremur dögum eftir að hann var handtekinn.

Lögreglumaðurinn Sergei Lapin var færður fyrir dómstól í október 2003 fyrir ofbeldi gegn Zelimkhan Murdalov. Við réttarhöldin var viðurkennt að hann hafi verið pyndaður meðan hann var í haldi lögreglu. Honum var gefið raflost og hann laminn með gúmmíkylfu í nokkrar klukkustundir. Handleggur hans var brotinn, eyrað rifið og hann fékk heilahristing. Vitni bera að hann gat varla staðið þegar hann var færður í fangaklefann. Lögreglumenn færðu hann að sögn í burtu í bíl daginn eftir.

Sergei Lapin var dæmdur í 11 ára fangelsi í mars 2005. Enginn hefur enn verið ákærður fyrir ránið á Zelimkhan Murdalov.

Í nóvember 2005 voru tveir lögreglumenn bendlaðir við ránið á Zelimkhan Murdalov og pyndingarnar sem hann sætti. Þeir hafa enn ekki verið handteknir.

Þrýstu á stjórnvöld !

Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

Bréfið í word-skjali

Bréfið í vefskjali







RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica