Hjálparákallsmál

Norður-Kórea: Kang Gun, ríkisborgara Suður-Kóreu, rænt í Kína

Hjálparákall desember 2009

Kang Gun

 

Kang Gun, suður-kóreskum ríkisborgara, var rænt í Kína. Talið er að norður-kóreskir leyniþjónustumenn hafi rænt honum. Hann sást síðast þann 4. mars 2005 í Jilin-héraði nærri landamærum Norður-Kóreu.

Hann var að sögn fluttur yfir landamærin til Norður-Kóreu og haldið í sex mánuði í fangelsi norður-kóresku leyniþjónustunnar í Chongjin í Norður-Hamgyong-héraði. Hann var yfirheyrður og ef til vill pyndaður og síðan fluttur í fangelsi í höfuðborginni, Pyongyang. Hætta er á að hann sæti frekari pyndingum eða aftöku.

Kang Gun, sem ólst upp í Norður-Kóreu, var foringi í leyniþjónustu Norður-Kóreu. Hann flúði til Kína árið 2000 og síðar til Suður-Kóreu þar sem hann fékk ríkisborgararétt. Síðar hóf hann að vekja athygli á mannréttindabrotum í Norður-Kóreu og hjálpa Norður-Kóreubúum sem reyndu að flýja til Suður-Kóreu. Í febrúar 2004 kom hann leynilegri upptöku úr fangabúðum í Norður-Kóreu áleiðis til sjónvarpsstöðvar í Japan.

Hundruð Norður-Kóreumanna flýja yfir landamærin til Kína ár hvert. Þúsundir hafa verið handteknir í Kína frá því á tíunda áratug síðustu aldar og fluttir aftur til Norður-Kóreu gegn vilja sínum. Margra þeirra bíður fangelsi í mörg ár og pyndingar. Sumir eru teknir af lífi.

 

Þrýstu á stjórnvöld !

Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

Bréfið í word-skjali

Bréfið í vefskjali







RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica