Kúba: verkalýðsleiðtoginn Léster González Pentón dæmdur í 20 ára fangelsi
Öll mannréttindasamtök og önnur félaga- og verkalýðssamtök á Kúbu, sem ekki lúta stjórn yfirvalda, eru ólögleg. Léster González Pentón hefur starfað fyrir tvö slík mannréttindasamtök, Skynsemis-, sannleiks- og frelsismannréttindasamtökin (Movimiento pro Derechos Humanos Razón, Verdad y Libertad) og Kúbversku samtök lýðræðislegra verkamanna (Confederación de Trabajadores Democráticos de Cuba). Fyrir þau störf sín afplánar hann nú 20 ára fangelsisdóm.
Lögreglumenn áreittu hann árið 2001 og aftur árið 2002. Þann 18. mars 2003 var hann handtekinn og ákærður fyrir að eiga samskipti við „undirróðurssamtök“ og að vanvirða þjóðhöfðingjann. Hann var dæmdur þann 7. apríl 2003, á grundvelli 91. greinar refsilaggjafarinnar, meðal annars fyrir athæfi gegn sjálfstæði Kúbu og að móðga þjóðhöfðingja landsins. Samkvæmt texta dómsins fólst refsiverður verknaður hans til dæmis í því að veita útvarpsstöðvum í Miami í Bandaríkjunum „villandi“ upplýsingar um mannréttindaástandið á Kúbu. Léster González Pentón var 26 ára þegar hann var handtekinn og yngstur þeirra sem handteknir voru í atlögu stjórnvalda gegn andófsfólki í mars 2003.
Amnesty International telur Léster González Pentón vera samviskufanga og að honum sé haldið fyrir það eitt að nýta sér tjáningar- og félagafrelsi sitt.
Þrýstu á stjórnvöld !
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:
