Hjálparákallsmál
Moldavía: ill meðferð á Oxana Radu í varðhaldi

Oxana Radu
Hundruð mótmælenda, þeirra á meðal börn, sættu að sögn illri meðferð lögreglu í varðhaldsvist í kjölfar þingkosninga í apríl 2009. Oxana Radu var í hópi 36 ungmenna sem ferðuðust frá Suður-Moldavíu til höfuðborgarinnar, Chişinău, til að taka þátt í mótmælunum. Rúturnar sem þau voru í voru stöðvaðar þegar þau ætluðu að halda heim á leið nálægt miðnætti þann 7. apríl. Þau voru flutt á lögreglustöð í Chişinău, þar sem Oxana Radu og aðrir í hópnum sættu illri meðferð.
Oxana Radu sagði Amnesty International: „Þeir fóru með mig í herbergi þar sem voru lögreglumaður og lögreglukona. Þau neyddu mig til að afklæðast og ég reyndi að hylja mig með höndunum... af því að ég blygðaðist mín og þau hlógu að mér og sögðu „Þú ert köld, við skulum hita þig upp“. Þau neyddu mig til að setjast á hækjur mér“. Hún var síðan færð í klefa og haldið með systur sinni og fjórum öðrum konum. Þær fengu að sögn engan mat eða vatn í tvo daga og fengu ekki að hitta lögfræðing eða hafa samband við fjölskyldu sína.
Oxana Radu var ákærð fyrir að hrópa á lögreglumann og dæmd í fimm daga varðhaldsvist. Hún og tvær aðrar konur voru fluttar í norðanvert landið til að afplána dóma sína. Hún var leyst úr haldið kl. tvö að nóttu þann 14. apríl. Oxana Radu hefur lagt fram kæru vegna meðferðarinnar en saksóknari hefur tvisvar neitað að hefja rannsókn á málinu.
Þrýstu á stjórnvöld !
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

