Hjálparákallsmál
Túnis: óréttlát réttarhöld yfir fórnarlömbum pyndinga

Saber Ragoubi
Þrjátíu menn voru handteknir í desember 2006 og janúar 2007 vegna gruns um að þeir tengdust átökum öryggissveita og vopnaðs hóps nærri bænum Soliman, nálægt Túnis. Þeir sættu langvinnu varðhaldi áður en þeir voru færðir fyrir dómara, sem brýtur gegn lögum í Túnis, er leyfa sex daga áður en færa verður fólk fyrir dómara.
Réttað var yfir mönnunum þann 30. nóvember 2007. Þeir voru meðal annars ákærðir fyrir samsæri um að ætla að steypa stjórninni, notkun skotvopna og að tilheyra hryðjuverkasamtökum. Fulltrúar frá Amnesty International fylgdust með hluta réttarhaldanna. Þau uppfylltu ekki alþjóðleg viðmið um sanngjörn réttarhöld.
Fyrir dómi sögðu mennirnir að þeir hefðu sætt pyndingum og annarri illri meðferð í varðhaldsvistinni, þar á meðal að þeir hefðu verið látnir hanga úr loftinu, þeir kýldir, í þá sparkað, þeir barðir með prikum, gengið á þeim og þeir sætt gerviaftökum. Sumum þeirra var hótað að þeim yrði nauðgað eða mæðrum þeirra og systrum. Einn þeirra, Saber Ragoubi, sagði við dómarann: „Ráðist var á mig í Mornaguia-fangelsi og ég missti þrjár framtennur; ég fer fram á rannsókn á árásinni. Ég var einnig neyddur til að afklæðast og raka skegg mitt.“ En engin fullnægjandi rannsókn fór fram á ásökunum mannanna um pyndingar og þvingaðar játningar.
Tuttugu og níu mannanna voru dæmdir í allt frá þriggja ára til lífstíðarfangelsi. Saber Ragoubi fékk dauðadóm. Honum er nú haldið í einangrun og fjölskylda hans fær ekki að heimsækja hann, né fær hann að skrifa bréf, í trássi við lög í Túnis og alþjóðleg viðmið.
Þrýstu á stjórnvöld !
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

