Hjálparákallsmál

Kína: kvikmyndagerðarmaðurinn Dhondup Wangchen fyrir rétti

 

Dhondup Wangchen

Dhondup Wangchen

 

Tíbetski kvikmyndagerðarmaðurinn Dhondup Wangchen er ef til vill fyrir rétti vegna heimildamyndar sem hann gerði í aðdraganda Ólympíuleikanna í Peking 2008. Í bréfi sem smyglað var þaðan sem hann er í varðhaldi segir hann: „Ég get ekki sagt ykkur neinar góðar fréttir [...] Óvíst er hvaða dómur verður felldur.“

Í heimildamyndinni, Óttinn að baki (Leaving Fear Behind), eru viðtöl við Tíbeta, sem allir draga í efa loforð kínverskra stjórnvalda um aukið frelsi í aðdraganda Ólympíuleikanna. Myndinni var smyglað til Sviss, þar sem Gyaljong Tsetrin, frændi Dhondup Wangchen, klippti myndina.

Dhondup Wangchen var handtekinn þann 28. mars 2008 í Qinghai-héraði. Hann náði að flýja þann 13. júlí 2008 og hringdi til Gyaljong Tsetrin. Hann var síðar handtekinn aftur og er nú í haldi í Varðhaldsmiðstöð Xining-borgar nr. 1.  Dhondup Wangchen lýsti því í símtalinu við frænda sinn hvernig hann sætti pyndingum í varðhaldsvistinni. Hann var yfirheyrður í nokkrar vikur og sætti barsmíðum, var laminn í hausinn, iðulega neitað um mat og svefn, og bundinn í stól. Hann er með lifrarbólgu B, en hefur ekki fengið neina læknismeðferð við henni.

Stjórnvöld hafa ákært Dhondup Wangchen fyrir að „hvetja til aðskilnaðarstefnu“ en neita að staðfesta að réttað hafi verið yfir honum. Þau neyddu lögfræðinga, sem fjölskyldan hafði beðið um að taka málið að sér, til að segja sig frá því í júlí 2009. Í ljósi þess má draga má í efa að réttarhöldin yfir honum verði sanngjörn.

 

Þrýstu á stjórnvöld !

Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

Bréfið í word-skjali

Bréfið í vefskjali







RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica